Lýsing
Handgerð í Síerra Leóne
Lyklakippan var hönnuð af Hönnuh Samura, listakonu sem starfar á Lumley Beach-markaðnum í Freetown í Síerra Leóne. Hún og 17 aðrir einstaklingar komu að handgerð lyklakippanna og tók framleiðslan um fjóra mánuði.
Með framleiðslunni var stutt við staðbundið handverk og atvinnusköpun í Síerra Leóne.
Til verndar börnum gegn kynferðisofbeldi
Með kaupum á lyklakippunni styður þú forvarnastarf Barnaheilla gegn kynferðisofbeldi á börnum. Barnaheill vinna að því að fræða fullorðna um hvernig hægt er að fyrirbyggja kynferðisofbeldi, þekkja vísbendingar um að barn sé í hættu og bregðast rétt við þegar grunur vaknar.

Frá vinstri: Jenneh Momoh, Baindu Amara, Jurna Lahai (male, behind), Adama Lahai, Hannah Samura, Isatu Mansaray, Massah Dukalay
