SJÁLFBÆRNISTEFNA BARNAHEILLA

Barnaheill – Save the Children á Íslandi vinna ötullega að því að mannréttindi barna séu virt. Með Barnasáttmálann og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi hafa helstu áherslur samtakanna verið að standa vörð um réttindi barna, barátta gegn ofbeldi á börnum, heilbrigðismál barna og að efla áhrifamátt barna í samfélaginu. Framtíðarsýn heimsmarkmiðanna er sjálfbær veröld þar sem friður og jöfnuður ríkir, hungri og fátækt hefur verið útrýmt og mannréttindi eru virt. Þetta endurspeglast í sjálfbærnistefnu okkar.

Sjálfbærni er rauði þráðurinn í öllu starfi og verkefnum Barnaheilla, innlendum sem erlendum. Með stefnunni vilja Barnaheill vinna markvisst að sjálfbærri þróun, sýna samfélagslega ábyrgð og vera öðrum samtökum fyrirmynd og hvatning til sjálfbærra starfshátta.

Samkvæmt alþjóðasamtökum Barnaheilla – Save the Children eru loftslagsbreytingar helsta ógn samtímans við börn og þau leggja ríka áherslu á að berjast fyrir loftslagsréttindum barna á heimsvísu


MEGIN MARKMIÐ

Meginmarkmið sjálfbærnistefnunnar er tvíþætt; i) að bæta líf barna um allan heim, ii) að rekstur samtakanna sé til fyrirmyndar útfrá alþjóðlegum, viðurkenndum viðmiðum og stefnu Íslands um sjálfbæra þróun.

Sjálfbærnistefna Barnaheilla byggir á alþjóðlegum samþykktum, svo sem heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sem og umhverfis- og loftslagsstefnu alþjóðasamtakanna, íslenskum lögum og stefnu um sjálfbæra þróun.

Umhverfisleg viðmið

    Barnaheill starfa markvisst að því að minnka neikvæð umhverfisáhrif á börn og styðja við aðgerðir Sameinuðu þjóðanna í loftslagsmálum.

    Í erlendu verkefnum Barnaheilla er áhersla lögð á þróunar- og neyðaraðstoð. Neyðaraðstoðin snýr að viðbrögðum við neyð í kjölfar náttúruhamfara eða hamfara af mannavöldum. Í erlenda starfinu er umhverfisstefnu alþjóðasamtaka Barnaheilla - Save the Children fylgt og unnið náið með systurskrifstofunum sem leitast við að leiða starfið á vettvangi á sjálfbæran hátt.

    Barnaheill kappkosta að halda vistspori samtakanna í lágmarki en samtökin skila árlega upplýsingum til alþjóðasamtakanna sem reikna kolefnisspor okkar með það að markmiði að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.

Félagsleg viðmið

    Í öllum verkefnum Barnaheilla er hugað að félagslega þættinum í lífi barna.

    Í innlendum verkefnum er lögð sérstök áhersla á jafnrétti, jöfnuð, heilbrigði, menntun, réttlæti og vernd gegn ofbeld

    Í erlendum verkefnum er stutt við sömu markmiðin þó megináhersla sé á að uppræta ofbeldi, kynjamisrétti og fátækt meðal barna. Með þróunaraðstoð veita Barnaheill aðstoð til lágtekjuríkja í Afríku sunnan Sahara í samræmi við alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands fyrir árin 2024-2028 þar sem er lögð áhersla á almenna velferð á grundvelli mannréttinda.

    Í innra starfi samtakanna er hugað að virðingu, jafnræði, tjáningarfrelsi og heilbrigðri vinnustaðamenningu. Áhersla er lögð á góða stjórnarhætti með gagnsæi að leiðarljósi er varðar stjórn samtakanna, stjórnendur og innra eftirlit með samfélagslega ábyrgð í fyrirrúmi.

    Markvisst samstarf við stjórnvöld, stofnanir og önnur félagasamtök er ástundað til að skerpa á forgangsröðun og skilvirkni í verkefnum.

Efnahagsleg viðmið

    Barnaheill eru óhagnaðardrifin, frjáls félagasamtök sem leggja áherslu á skynsama nýtingu fjármagns í verkefnum og rekstri samtakanna.

    Í fjáröflun samtakanna eru vörur framleiddar með sjálfbærum hætti og áhersla lögð á atvinnusköpun, jafnréttismál og umhverfismál.