Alþjóðastarf barnaheilla
Alþjóðastarf Barnaheilla skiptist annars vegar í þróunaraðstoð og hins vegar neyðaraðstoð. Neyðaraðstoðin snýr að viðbrögðum við neyð í kjölfar náttúruhamfara, eða hamfara af mannavöldum. Með þróunaraðstoð veita Barnaheill aðstoð til fátækustu ríkja heims þar sem er lögð áhersla á almenna velferð á grundvelli mannréttinda.
Unnið er náið með alþjóðasamtökum Barnaheilla – Save the Children um mótun stefnu og starfshátta. Starfsfólk samtakanna er í miklum samskiptum við starfsfólk alþjóðaskrifstofunnar, sem staðsett er í London. Einnig vinna Barnaheill náið með staðbundnum skrifstofum í þeim löndum sem samtökin veita aðstoð í.
Með stuðningi félagsfólks og styrktaraðila, síðustu rúmlega 100 ár, hafa alþjóðasamtök Barnaheilla – Save the Children breytt lífi yfir 1 milljarðs barna.
verkefni barnaheilla
Lýðstjórnarlýðveldið KONGÓ
Barnaheill hafa starfað í Kongó frá árinu 2022 og eru með starfrækt þróunarverkefni í bænum Goma í Norður-Kivu og mannúðarverkefni í Uvira, Suður-Kivu. Bæði verkefnin eru staðsett í austanverðu landinu þar sem mikil átök eru.
VIÐBRAGÐSSJÓÐUR
Á hverju ári veita Barnaheill fjárframlög í viðbragðssjóð alþjóðasamtaka Barnaheilla – Save the Children. Viðbragðssjóðurinn gerir alþjóðasamtökunum kleift að bregðast hratt við þegar upp kemur neyð í heiminum, t.a.m. vegna náttúruhamfara eða átaka.
ÍRAK
Þann 1. apríl 2025 hófu Barnaheill mannúðarverkefni í norðurhluta Íraks. Verkefnið miðar að því að efla vernd og vellíðan berskjaldaðra barna og umönnunaraðila þeirra sem dvelja í flóttamannabúðum með því að styrkja barnaverndarkerfi, bæta aðgengi að nauðsynlegri þjónustu og efla seiglu í samfélaginu.
MADAGASKAR
Í maí 2025 hófu Barnaheill nýtt loftslagsverkefni í Madagaskar. Verkefnið sem ber heitið Miavotse mun ná til 4.000 barna og fullorðinna í Androy héraði á sunnanverðri eyjunni og stendur yfir í 18 mánuði. Verkefnið miðar að því að tryggja velferð barna og draga úr fátækt á þurrkasvæðum.
SÍERRA LEÓNE
Barnaheill hafa starfað í Síerra Leóne frá árinu 2021 með áherslu á vernd gegn ofbeldi á börnum. Verkefnið er unnið í 10 afskekktum samfélögum í fátækasta héraði landsins. Í Síerra Leóne er eitt mesta kynjamisrétti í heiminum og eru stúlkur og konur útsettar fyrir ofbeldi af ýmsu tagi.
LÍBERÍA
Barnaheill störfuðu í Líberíu á árunum 2022-2025. Verkefnin þar miðuðu að því að tryggja öryggi barna á skólaaldri og vernda þau gegn ofbeldi, sér í lagi kynbundnu og kynferðisofbeldi.
