dagur mannréttinda barna árið 2025

Samstæðuspil fyrir alla 6. bekkinga 

Í tilefni af Degi mannréttinda barna árið 2025 sendu Barnaheilla öllum 6. Bekkjum landsins spilastokk með samstæðuspilum sem ætluð eru að hjálpa þeim að skilja og muna réttindi sín. Í stokknum má finna spil með 15 af þeim 54 réttindum barna sem finna má í Barnasáttmála sameinuðu þjóðanna.  Barnasáttmálinn hefur verið lögfestur á Íslandi og gilda því um hann sömu reglur og önnur íslensk lög.

Hægt er að nota spilin á ýmsan hátt t.d. sem:
  • hefðbundin samstæðuspil, nemendur para saman réttindi við spil sem lýsir því hvað réttindin þýða
  •  öll spjöldin snúa upp og nemendur lesa textann og hjálpast að við reyna að para saman spil sem passa saman þ.e. réttindi við lýsingu á réttindum
  • veiðimann: Öll spilin eru sett á hvolf, nemendur fá 3-5 spil á hendi eftir þvi hversu margir eru að spila í einu og þeir reyna að veiða sér par. Spyrja hvort hinir eigi t.d. lýsinguna sem passar við réttindin eða öfugt og ef enginn á þá má draga eitt spil
  • kennari getur skipt nemendum í litla hópa, hver hópur dregur eitt spil úr spilastokknum og ræðir um þau réttindi sem spilið stendur fyrir. Svo búa þau til sögu um hvernig þessi réttindi birtast í daglegu lífi barna eða hvernig það væri ef barn myndi missa þessi réttindi úr sínu daglega lífi.
Virðum og verndum réttindi barna í dag og alla daga!
 

dagur mannréttinda barna árið 2024

Tileinkaður börnum sem hafa þurft að yfirgefa heimili sitt
 

Í tengslum við daginn höfum við hjá Barnaheillum útbúið stutt myndband þar sem rætt er við börn frá Grindavík, Úkraínu og Palestínu sem öll eiga það sameiginlegt að hafa þurft að yfirgefa heimili sín. Auk þeirra er rætt við sérfræðing í fjölmenningarmálum.

Markmiðið með myndbandinu er að vekja athygli á því áfalli sem það er að missa heimili sitt og mikilvægi þess að hlúa vel að þessum hópi barna.

Hvernig myndi þér líða ef þú þyrftir að yfirgefa heimilið þitt í flýti?

Myndbandinu er ætlað að gefa okkur innsýn í hvernig börnunum líður, hvers þau sakna og hverjir framtíðardraumar þeirra eru. Myndbandið er sent á alla grunn- og framhaldsskóla landsins og fylgir því verkefni sem er ætlað að fá börnin til að íhuga stöðu og réttindi þessara barna og setja sig í spor þeirra.

Öll getum við gert eitthvað, en hvað þarf að gera betur? 

Um dag mannréttinda barna

Dagur mannréttinda barna er haldinn 20. nóvember ár hvert og er hann helgaður vitundarvakningu og fræðslu um Barnasáttmála sameinuðu þjóðanna og þau réttindi sem öll börn eiga að njóta. 

Upphaf Barnasáttmálans

Barnasáttmálinn er útbreiddasti mannréttindasamningur heims og Barnaheill eru stolt af því að Eglantyne Jebb, stofnandi alþjóðasamtaka Barnaheilla – Save the Children, er forsprakki Barnasáttmálans. Við lok fyrri heimstyrjaldarinnar setti hún fram þá hugmyndafræði að börn eru einstaklingar, ekki eignir fullorðinna, og eigi því skilið að njóta eigin grundvallarréttinda.

Með þessa hugmyndafræði í farteskinu samdi hún hina sögulegu Genfaryfirlýsingu um réttindi barna og hvatti Þjóðabandalagið, sem nú eru Sameinuðu þjóðirnar, til að útbúa sáttmála fyrir börn til að tryggja réttindi þeirra um vernd og umönnun.

Réttindi barna viðurkennd

Þann 26. september 1924 samþykkti Þjóðabandalagið yfirlýsingu Eglantyne og var þá í fyrsta sinn opinberlega lýst yfir að börn ættu sín eigin réttindi. Þar komu grundvallar mannréttindi barna um rétt til menntunar, verndar á neyðartímum, fæðu og öryggis gegn misnotkun skýrt fram. Yfirlýsing Eglantyne breytti lífi kynslóða barna og markaði upphaf framfara því seinna meir varð hún upphafið að Barnasáttmála sameinuðu þjóðanna.

Barnasmáttmálinn var samþykktur á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 20. nóvember 1989 og liggur því beinast við að dagurinn sé helgaður honum. Á Íslandi var Barnasmáttmálinn undirritaður á Alþingi árið 1990 og svo lögfestur á Alþingi árið 2013.  Með aðild að Barnasáttmálanum skuldabindur Ísland sig til að grípa til allra nauðsynlegra og viðeigandi ráðstafana til að innleiða hann að fullu á öllum sviðum samfélagsins.

Saga Barnaheilla samofin Barnasáttmálanum

Margt hefur áunnist í málefnum barna frá því sáttmálinn var samþykktur en ennþá eru þó fjölmargar áskoranir í réttindabaráttunni og því alltaf nauðsynlegt að standa vörð um mannúð og sjálfsögð mannréttindi barna. Að gæta réttinda barna er saga Barnaheilla – Save the Children á Íslandi, saga fortíðar, saga nútíðar og saga framtíðar. Í ljósi þeirrar sögu var Barnaheillum falið af Mennta- og barnamálaráðuneytinu að sjá um framkvæmd dagsins.

 

verkefni fyrri ára