22.06.2011
Aðalfundur Barnaheilla –Save the Children á Íslandi verður haldinn miðvikudaginn 29. júní nk. kl. 17:00 á skrifstofu samtakanna að Suðurlandsbraut 24. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Félagsmenn eru hvattir til að mæta.Stjórn Barnaheilla –Save the Children á ÍslandiAðalfundur Barnaheilla –Save the Children á Íslandi verður haldinn miðvikudaginn 29. júní nk. kl. 17:00 á skrifstofu samtakanna að Suðurlandsbraut 24. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Félagsmenn eru hvattir til að mæta.Stjórn Barnaheilla –Save the Children á Íslandi...
16.06.2011
Aukin átök og ofbeldi í Suður-Kordofan í Súdan hafa hrakið yfir 60 þúsund manns frá heimilum sínum undanfarna daga. 30 þúsund þeirra eru börn sem eiga á hættu að verða aðskilin frá fjölskyldum sínum og verða fyrir sálrænum skaða og misnotkun. Starfsmenn Barnaheilla – Save the Children á vettvangi hafa gríðarlegar áhyggjur af þessum börnum.Aukin átök og ofbeldi í Suður-Kordofan í Súdan hafa hrakið yfir 60 þúsund manns frá heimilum sínum undanfarna daga. 30 þúsund þeirra eru börn sem eiga á hættu að verða aðskilin frá fjölskyldum sínum og verða fyrir sálrænum skaða og misnotkun. Starfsmenn Barnaheilla – Save the Children á ve...
10.06.2011
David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, leiðir fund þjóðarleiðtoga í London mánudaginn 13. júní nk. um bólusetningar. Barnaheill – Save the Children segja að hér gefist einstakt tækifæri til að bjarga lífi fjögurra milljóna barna á fjórum tímum.David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, leiðir fund þjóðarleiðtoga í London mánudaginn 13. júní nk. um bólusetningar. Barnaheill – Save the Children segja að hér gefist einstakt tækifæri til að bjarga lífi fjögurra milljóna barna á fjórum tímum.Barn bólusett í Suður-Súdan. Ljósmynd: Rachel Palmer/Save the Children.Barnaheill – Save the Children skora á þjóðarleiðtogana...
10.06.2011
Barnaheill – Save the Children á Íslandi hafa fengið 10 milljóna króna styrk frá utanríkisráðuneytinu fyrir menntunar- og uppbyggingastarf sitt í Pader og Agogo-héruðum í Norður-Úganda. Sérstök áhersla er lögð á menntun, heilsu og vernd barna.Barnaheill – Save the Children á Íslandi hafa fengið 10 milljóna króna styrk frá utanríkisráðuneytinu fyrir menntunar- og uppbyggingastarf sitt í Pader og Agogo-héruðum í Norður-Úganda. Sérstök áhersla er lögð á menntun, heilsu og vernd barna.Barnaheill – Save the Children á Íslandi hófu stuðning og þátttöku við uppbyggingu menntunarstarfs í Norður–Úganda í lok árs 2007. Styrkurinn nú mun...
07.06.2011
Börn og fjölskyldur í Abidjan, sem urðu fyrir barðinu á átökunum á Fílabeinsströndinni í kjölfar forsetakosninga í landinu, þurfa fyrst og síðast á matvælum að halda, nú þegar sex mánuðir eru liðnir frá kosningunum. Þetta er álit teymis Barnaheilla – Save the Children sem lagt hefur mat á þarfir fjölskyldnanna. Þegar hefur orðið vart við alvarlega vannæringu hjá börnum undir fimm ára aldri.Eitt af hverjum þremur börnum undir fimm ára aldri á Fílabeinsströndinni var vannært, áður en átökin í kjölfar kosninga þar brutust út fyrir sex mánuðum. Ástandið hefur síst batnað. Ljósmynd: Annie Bodmer-Roy/Save the Children.Börn og fj&ou...
01.06.2011
Aukin átök á hinu umdeilda Abyei-svæði í Súdan hafa hrakið tæplega 35 þúsund börn brott frá heimilum sínum frá því 20. maí sl. Þetta er mat Barnaheilla – Save the Children sem vara við því að mörg þeirra barna sem orðið hafa viðskila við fjölskyldur sínar, eigi mjög á hættu að verða fyrir alvarlegu andlegu áfalli og misnotkun. Awen hefur verið á flótta með barnabörn sín frá því að átökin hófust. Ljósmynd: Barnaheill - Save the Children.Aukin átök á hinu umdeilda Abyei-svæði í Súdan hafa hrakið tæplega 35 þúsund börn brott frá heimilum sínum frá því 20. maí sl. Þetta er ...
31.05.2011
Barnaheill – Save the Children á Íslandi hafa ýtt úr vör heillavinaátaki en heillavinir eru þeir sem greiða fast mánaðarlegt framlag til verkefna samtakanna. Ætlunin er að afla 1000 nýrra heillavina svo efla megi starfsemina og standa nú sem fyrr vörð um mannréttindi barna. Samtökin hvetja alla þá sem áhuga hafa á þessum málaflokki að gerast heillavinir og tryggja börnum þannig öfluga málsvara.Barnaheill – Save the Children á Íslandi hafa ýtt úr vör heillavinaátaki en heillavinir eru þeir sem greiða fast mánaðarlegt framlag til verkefna samtakanna. Ætlunin er að afla 1000 nýrra heillavina svo efla megi starfsemina og standa nú sem fyrr vörð um mannréttindi barna. Samtökin hvetja alla þá ...
31.05.2011
Þrjú dugleg börn, Gyða Björg Ásbjarnardóttir, Elíana Mist Friðriksdóttir og Þráinn Ásbjarnarson, komu færandi hendi á skrifstofu Barnaheilla – Save the Children á Íslandi á dögunum. Þau færðu samtökunum að gjöf afrakstur tombólu sem þau héldu í Álfheimum.Þrjú dugleg börn, Gyða Björg Ásbjarnardóttir, Elíana Mist Friðriksdóttir og Þráinn Ásbjarnarson, komu færandi hendi á skrifstofu Barnaheilla – Save the Children á Íslandi á dögunum. Þau færðu samtökunum að gjöf afrakstur tombólu sem þau héldu í Álfheimum.Alls söfnuðu börnin 1.465 krónum sem þau afhentu Petrínu Ásgeirsdó...
30.05.2011
Barnaheill – Save the Children á Íslandi afhentu í dag Jóni Gnarr, borgarstjóra Reykjavíkur undirskriftir tæplega 11000 einstaklinga þar sem þeir skora á yfirvöld að tryggja börnum, sem eru vitni að heimilisofbeldi, tilhlýðilegan stuðning. Rannsókn samtakanna sem kynnt var febrúar leiddi í ljós að þessum börnum standa ekki nægileg úrræði til boða af hálfu félagslega kerfisins í Reykjavík. Skortur virðist á samráði milli þeirra stofnana, sem að þessum málaflokk koma, þegar börn eru annars vegar. Misbrestur er á að rætt sé við börn og líðan þeirra metin og tæplega helmingi heimilisofbeldismála, sem tilkynnt eru til barnaverndar, lýkur með bréfi til &tho...