Yfir 100.000 börn á flótta í Suður-Kivu vegna vaxandi ofbeldis

Vegna vaxandi ofbeldis hafa yfir 200.000 manns, þar af um 104.000 börn, neyðst til að flýja heimili sín síðustu daga í Suður-Kivu héraði í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó. Fjölskyldur og börn leita nú skjóls annars staðar í Kongó og yfir landamærin til Búrúndí og Rúanda.

Vopnaðar sveitir beita þungavopnum á mörgum vígstöðvum og hafa ráðist beint á borgara og innviði, þar á meðal skóla og heilsugæslustöðvar.

Ástandið hefur haft alvarleg áhrif á menntun barna í héraðinu. Um 1.270 skólar – eða 15% allra skóla í Suður-Kivu – eru óstarfhæfir vegna endurtekinna átaka, sem bitnar á yfir 390.000 nemendum. Að minnsta kosti 94 skólar hafa verið brenndir, eyðilagðir eða herteknir af vopnuðum hópum. Samkvæmt upplýsingum frá menntunarhópi hjálparsamtaka í héraðinu hafa fjórir nemendur verið drepnir, sex særðir og einum rænt.

Alþjóðasamtök Barnaheilla – Save the Children hafa starfað í Austur-Kongó frá árinu 1994 og eru með sterka innviði í borginni Uvira, síðasta stærsta þéttbýliskjarna í Suður-Kivu sem enn hefur sloppið við nýjustu árásirnar. Barnaheill – Save the Children á Íslandi hafa starfað í Kongó frá árinu 2022 og eru með starfræktmannúðarverkefni í Uvira.

Kolbrún Pálsdóttir, verkefnastjóri erlendra verkefna Barnaheilla segir:

,,Þessi skyndilega aukning ofbeldis hefur haft gríðarleg áhrif á líf margra barna og fjölskyldna. Börnin þurfa brýnustu lífsnauðsynjar – mat, vatn, hreinlæti og skjól – á meðan ógnin vofir yfir þeim. Við köllum eftir tafarlausum aðgerðum alþjóðasamfélagsins til að vernda borgara, tryggja óhindraðan aðgang hjálparaðila og vinna að friðsamlegri lausn á átökunum.“

Átökin í Kongó hafa skapað eina stærstu mannúðarkrísu heims. Um 7 milljónir manna eru á flótta innanlands, þar af að minnsta kosti 3,5 milljónir barna, og yfir 26 milljónir, eða fjórðungur íbúa landsins, þurfa á mannúðaraðstoð að halda.