Vigdís Finnbogadóttir segist stolt taka þátt í haustsöfnun Barnaheilla

Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, var að vonum glöð þegar hún tók á móti Vigdísarstokki úr hendi Tótlu I. Sæmundsdóttur framkvæmdastjóra Barnaheilla – Save the Children á Íslandi.

Spilastokkurinn var unninn í samvinnu við Rán Flygenring með myndum úr verki hennar Vigdís: Bókin um fyrsta konuforsetann, og er sala hans liður í haustsöfnun Barnaheilla sem hófst í gær.

„Ég er stolt að taka þátt í þessu verkefni með Barnaheillum, öllum börnum til heilla,“ sagði Vigdís þegar hún fékk stokkinn í hendur í gær.

Allur ágóði af sölu stokksins rennur til alþjóðlegra verkefna Barnaheilla í Síerra Leóne, Madagaskar, Tansaníu og Írak, þar sem samtökin vinna mikilvæg verkefni sem styðja börn sem búa við stríð, ofbeldi, fátækt og takmarkað aðgengi að menntun.

Vigdís Finnbogadóttir tók þátt í stofnun Barnaheilla á Íslandi árið 1989 og er nafn félagsins úr hennar smiðju. Vigdís hefur verið verndari samtakanna frá upphafi.

Með Vigdísarstokknum vilja Barnaheill heiðra framlag Vigdísar og þau gildi sem hún hefur alla tíð staðið fyrir; jafnrétti, sjálfbærni, menntun og virðingu fyrir öllum börnum.

Hægt er að kaupa Vigdísarstokkinn hér en dagana 27. ágúst – 5. september verður stokkurinn einnig til sölu í fjölmörgum verslunum á höfuðborgarsvæðinu. Auk þess mun sölufólk víðsvegar um landið ganga í hús og selja spilastokkinn fyrir utan verslanir og verslunarkjarna.

Barnaheill eru Rán Flygenring og bókaforlaginu Angústúru þakklát fyrir að hafa séð tækifæri í því að gefa teikningum og sögu Vigdísar nýjan tilgang með útgáfu spilastokksins, sem glatt getur alla aldurshópa.