Viðurkenning Barnaheilla 2026 – opnað fyrir tilnefningar

Hver á skilið Viðurkenningu Barnaheilla?

Tilnefningar eru opnar til 20. október 2026

Öllum er frjálst að senda inn tilnefningu. Hægt er að tilnefna einstakling, félagasamtök, stofnun eða hóp sem hefur lagt sitt af mörkum í þágu barna og réttinda þeirra.

Barnaheill – Save the Children á Íslandi veita árlega Viðurkenningu Barnaheilla fyrir sérstakt framlag í þágu barna og mannréttinda þeirra.

Viðurkenningin er afhent 20. nóvember, á afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Með viðurkenningunni vilja Barnaheill vekja athygli á mikilvægi þess að standa vörð um réttindi barna og fagna þeim sem gera gæfumun í lífi barna.

Hver finnst þér eiga viðurkenninguna skilið?

Sendu inn tilnefningu með þvi að fylla út formið hér fyrir neðan. Tilnefningunni skal fylgja rökstuðningur.

til viðurkenningar Barnaheilla árið 2026.
Tilnefningu skal fylgja rökstuðningur og dæmi um sérstakt framlag í þágu barna og mannréttinda þeirra.