Viðurkenning Barnaheilla 2025 – opnað fyrir tilnefningar

Nú óskum við eftir tilnefningum til Viðurkenningar Barnaheilla 2025

Öllum er frjálst að senda inn tilnefningu. Hægt er að tilnefna einstakling, félagasamtök, stofnun eða hóp sem hefur lagt sitt af mörkum til að bæta líf barna.

Barnaheill – Save the Children á Íslandi veita árlega Viðurkenningu Barnaheilla fyrir sérstakt framlag í þágu barna og mannréttinda þeirra.

Viðurkenningin er afhent í tengslum við afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna þann 20. nóvember og er ætlað að vekja athygli á mikilvægi þess að standa vörð um réttindi barna hér á landi. Barnasáttmálinn er leiðarljós í öllu starfi Barnaheilla, og með viðurkenningunni viljum við fagna þeim sem gera gæfumun í lífi barna.

Tilnefning er send inn með því að fylla út formið hér fyrir neðan. Tilnefningunni skal fylgja rökstuðningur.
til viðurkenningar Barnaheilla árið 2025.
Tilnefningu skal fylgja rökstuðningur og dæmi um sérstakt framlag í þágu barna og mannréttinda þeirra.