Að frumkvæði umboðsmanns barna hafa verið gefin út viðmið um skjánotkun barna og ungmenna til stuðnings foreldrum við að stuðla að jákvæðri og uppbyggilegri umgengni við tækni, tölvur og snjalltæki.
Útgáfa viðmiðanna er í samstarfi umboðsmanns barna, Barnaheilla, embættis landlæknis, Heilsugæslunnar, Heimilis og skóla, Landspítalans og SAFT. Viðmiðin eru gefni út fyrir aldursbilin 0–5 ára, 6–12 ára og 13–18 ára.
Hér fyrir neðan má skoða viðmið fyrir hvert aldursstig en einnig er hægt að finna nánari leiðbeiningar hér.
Viðmið um skjánotkun 0-5 ára barna
Fyrstu kynni barna af snjalltækjum ættu alltaf að fara fram undir handleiðslu fullorðinna.
Sjá nánar
Viðmið um skjánotkun 6-12 ára barna
Með skynsamri umgengni við snjalltæki geta þau orðið hluti af góðu uppeldi.
Sjá nánar
Viðmið um skjánotkun 13-18 ára barna
Það er fyrst og fremst á ábyrgð foreldra hversu mikil skjánotkun er á heimilinu.
Sjá nánar