Verndum börn gegn öfgum loftslagsbreytinga

Loftslagskrísan er ekki fjarlæg ógn – hún er veruleiki sem börn um allan heim búa nú þegar við. Hún ógnar lífi þeirra, heilsu, réttindum og framtíð.

Samkvæmt nýrri skýrslu Barnaheilla – Save the Children, sem er unnin í samstarfi við loftslagsvísindamenn við Vrije háskólann í Brussel, munu börn sem fædd eru árið 2020 standa frammi fyrir áður óþekktum öfgum í veðurfari ef ekki verður gripið til tafarlausra aðgerða.

Þau munu á lífsleiðinni upplifa margfalt fleiri hitabylgjur, uppskerubresti, flóð, hvirfilbyli, þurrka og skógarelda en fyrri kynslóðir.

Það er því lífsnauðsynlegt fyrir börn og framtíð þeirra að hlýnun jarðar sé haldið innan við 1.5°C í samræmi við Parísarsamkomulagið. Það er líflína fyrir milljónir barna um heim allan. Réttur barna til heilsu, menntunar og til að komast af er í hættu.

Það er ekki of seint að draga úr áhrifum loftslagsbreytinga

Rannsóknir sýna að með því að ná þessu markmiði myndu 58 milljónir barna sem fæddust árið 2020 ekki upplifa þær öfgar í veðurfari af völdum loftslagsbreytinga sem sjá má hér ofar.

Í dag bera 2.4 milljarðar barna nú þegar þungann af loftslagskrísunni – krísu sem þau ollu ekki – og þau sem búa við mestu misskiptinguna og mismununina líða mest fyrir afleiðingarnar.

Tími aðgerða er núna

Við verðum að krefjast tafarlausra, áþreifanlegra breytinga í menntun, aðstöðu almennings og viðbragðsáætlunum við hamförum. Við þurfum að hjálpa börnum að aðlagast loftslagsbreytingum, bregðast við missi og eyðileggingu. Við þurfum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að sporna gegn frekari hlýnun jarðar.

Tökum höndum saman á loftslagsdaginn – fyrir börnin, framtíðina og plánetuna.