Vel heppnað málþing Barnaheilla á lokadegi ÉG LOFA 2026

Málþing Barnaheilla var haldið 29. apríl, á lokadegi vitundarvakningar samtakanna um kynferðisofbeldi gegn börnum, ÉG LOFA. Fulltrúum af ungmennaþingum Barnaheilla um allt land var boðið til samtals við alþingismenn, fulltrúa stjórnvalda, lögreglu, félagasamtaka, skólayfirvalda, og stofnana sem hafa með málefni barna að gera.

Tótla I Sæmundsdóttir framkvæmdastjóri Barnaheilla
Tótla framkvæmdastjóri Barnaheilla stýrði málþinginu. Myndir: Ragnar Visage.

Tótla I. Sæmundsdóttir framkvæmdastjóri Barnaheilla setti málþingið. Arna Þórsdóttir menntunar- og uppeldisfræðingur kynnti rannsókn sína „Hún þarf vernd, hann þarf leiðsögn“ sem leitast við að varpa ljósi á hlutverk foreldra og ábyrgð tengt samfélagsmiðlanotkun barna, og hvernig orðræða um öryggi og eftirlit mótast af kyngervi barnanna. Svandís Anna Sigurðardóttir, verkefnastýra fræðslu- og forvarna hjá Stígamótum, fjallaði svo um nafnlaust netspjall samtakanna, Sjúktspjall, sem er opið ungmennum undir 25 ára aldri og er mikilvægur vettvangur fyrir þau til að ræða áhyggjur af samböndum sínum, samskiptum eða ofbeldi.

Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir verkefnisstýra Heillabrautar
Kolbrún Hrund verkefnisstýra Heillabrautar átti veg og vanda að ungmennaþingunum og vitundarvakningu Barnaheilla ÉG LOFA.

Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, verkefnastýra Heillabrautar, ofbeldisforvarnar- og kynheilbrigðisverkefna Barnaheilla, greindi frá niðurstöðum af ungmennaþingum um ofbeldi í nánum samböndum, sem samtökin héldu á Suðurnesjum, í Hafnarfirði, á Egilsstöðum, Selfossi og Ísafirði með þátttöku 300 nemenda á aldrinum 15-19 ára úr grunn- og framhaldsskólum á svæðunum. Landshlutarnir áttu svo sína ungmennafulltrúa á málþinginu, og var þeim boðið að eiga samtal við ráðamenn og fagfólk um niðurstöður ungmennaþinganna. Rætt var um hvernig best sé að bregðast við ákalli unga fólksins um meiri fræðslu og auknum úrræðum, bæði fyrir þolendur og gerendur ofbeldis.

 

Elijah Kristinn tónlistamaður
Hinn 15 ára Elijah Kristinn stal senunni í lok málþingsins með söngatriði sínu.

Í lok málþingsins flutti hinn fimmtán ára Elijah Kristinn stórkostlegt söngatriði og sendi alla málþingsgesti með hlýju í hjarta út í vorið.

 

 

 

 

 

Málþing ÉG LOFA 2026
Ungmennin tóku virkan þátt í umræðum á málþinginu.
Málþing ÉG LOFA 2026
Fjörug og skemmtileg skoðanaskipti milli kynslóða sköpuðust í lok málþingsins.