HVAÐ ER UNGHEILL?

Ungheill er ungmennaráð Barnaheilla – Save the Children á Íslandi. Ungheill er vettvangur ungs fólks á aldrinum 13 – 25 ára til að  hafa áhrif á málefni barna og ungmenna – hér heima og á heimsvísu. Ungmennaráðinu er ætlað að berjast fyrir réttindum barna, í samræmi við stefnu Barnaheilla – Save the Children á Íslandi.

Stjórn Ungheilla samanstendur af 5 – 7 fulltrúum, sem funda að minnsta kosti einu sinni í mánuði. Starfsárið fylgir skólaárinu og er frá september fram í maí. 

Hver geta sótt um? Ungt fólk á aldrinum 13–25 ára – alls staðar af landinu. Fólk af öllum uppruna, með fjölbreytta reynslu og bakgrunn – rödd allra skiptir máli!
Til að vera með í stjórn Ungheilla og hafa áhrif – skráðu þig á ungheill@barnaheill.is eða sendu okkur skilaboð á Instagram @barnaheill.
SEM STJÓRNARMEÐLIMUR GETUR ÞÚ:
  • Látið rödd þína heyrast í málefnum sem brenna á þér, hvort sem það er almennt um réttindi barna, geðheilbrigði, loftslagsmál, jafnrétti – eða annað sem skiptir þig máli í baráttunni fyrir betri heimi.
  • Mótað herferðir, viðburði, skrifað pistla, tekið þátt í fræðslu eða talað fyrir hönd Ungheilla.
  • Unnið í samstarfi við starfsfólk Barnaheilla og með öðru ungu fólki, byggt upp tengslanet og lagt þitt af mörkum til tryggja börnum betri heim.

HLUTVERK UNGHEILLA

  • Að vera rödd barna og ungmenna í samfélaginu – og láta hana heyrast.
  • Að vekja athygli á réttindum og stöðu barna, hvar sem er í heiminum.
  • Að virkja ungt fólk til þátttöku og lýðræðislegra áhrifa.
  • Að taka þátt í starfi samtakanna og vinna náið með starfsfólki á skrifstofu Barnaheilla og rækta samband við erlend ungmennafélög.

Við hjá Ungheillum trúum því að ungt fólk geti breytt heiminum og viljum tryggja að rödd þeirra heyrist þar sem ákvarðanir eru teknar – hjá Barnaheillum, í samfélaginu og gagnvart stjórnvöldum.

 AF HVERJU AÐ TAKA ÞÁTT?

Við viljum að rödd ungs fólks heyrist í ákvörðunum og verkefnum Barnaheilla.

Hæfni og tengslanet – þú byggir upp leiðtogahæfni, sjálfstraust og eflir samstarf við önnur ungmenni.
Skapandi vettvangur – þú mátt vera þú sjálf/ur/t og nýta það sem þér finnst skemmtilegast og þú brennur fyrir.
Árangur sem sést – við mælum árangur og fögnum saman á uppskeruhátíð.
HVERNIG VIRKAR ÞAÐ?

Við nýtum styrkleika hvers og eins. 

Sumum finnst best að skrifa skoðanapistla eða tala við fjölmiðla, önnur vilja halda vinnustofur, skipuleggja viðburði, taka upp myndbönd eða vinna á samfélagsmiðlum.
Ráðið velur árlegar áherslur, vinnur í smærri hópum og hittist að lágmarki mánaðarlega.
VÆNTINGAR OG ÞÁTTTAKA

Þú þarft ekki reynslu – bara áhuga og vilja til að láta rödd þína heyrast.

Skuldbinding: mæting á mánaðarlega fundi og þau verkefni sem þú velur með hópnum.
Sveigjanleiki: við virðum skóla, vinnu og líðan. Þú velur þinn hraða.
Jafnrétti og öruggt rými: reglur um samskipti og trúnað gilda á öllum fundum og viðburðum.