Ungheill segja ekki tekið mið af óskum ungmenna í reglugerð um símafrí

Ungheill gagnrýna að ekki hafi verið tekið tillit til tillagna ungmenna sem tóku þátt í vinnustofu með mennta- og barnamálaráðherra nú í vor. Benda þau á að sveigjanleika þurfi í reglum varðandi notkun síma og snjalltækja í skólum, ásamt því að mikilvægt sé að auka aðra afþreyingu og efla fræðslu og forvarnir. Ungmennaráð Barnaheilla skilaði sinni þriðju umsögn um málið þann 1. júlí.

Þar segir að þrátt fyrir að ungmennin hafi lagt fram fjölmargar hugmyndir, ábendingar og sjónarmið um hvernig best væri að útfæra símafrí í skólum, virðist ekkert af þeirra vinnu hafa verið tekin til greina í reglugerðinni sem nú liggur fyrir í samráðsgátt stjórnvalda.

Ungheill segja það koma á óvart að reglugerðin skuli gera ráð fyrir algjöru banni á tækjum á skólatíma frekar en að bannið nái fyrst og fremst til kennslustunda. Þau telja ákall um slíkan sveigjanleika og aukna fræðslu og forvarnir gegn tækjafíkn hafa komið skýrt fram í vinnustofunni með ungmennunum og það sýni ekki virðingu við börn sem hafi lagt mikið á sig við undirbúning við að mæta til samráðs að nýta engar tillögur frá þeim í nýrri reglugerð.

Vinnustofa ráðherra hafi verið kynnt í fjölmiðlum sem eiginlegt samráð við ungmenni, og því séu mikil vonbrigði að ábendingar þeirra skuli ekki hafa ratað í lokadrög reglugerðarinnar.

Indriði Nökkvi Þóreyjarson og Karitas Lea Kristjánsdóttir mættu fyrir hönd Ungheilla til að ræða þessi mál í morgunútvarpi Rásar 2 þann 30. júní. Hlusta má á viðtalið við þau hér, og lesa umsögn Ungheilla um reglugerðina hér.

Hér má einnig sjá frétt RÚV um málið, og viðbrögð ráðherra hér.