Ungheill segja breytingar á einkunnakerfi grunnskóla illa undirbúnar og ósanngjarnar

Ungheill  gagnrýna fyrirhugaðar breytingar barna- og menntamálaráðherra á námsmatskvarða í 10. bekk grunnskóla og telja þær of illa undirbúnar. Þetta kemur fram í umsögn Ungheilla um bráðabirgðaákvæði um notkun talnakvarða í námsmati við lok grunnskólans, en þau voru meðal 116 umsagnaraðilar sem skiluðu áliti í samráðsgátt stjórnvalda.

Í umsögninni kemur fram að þau telji hugmyndina góða því talnakavarði geti gefið skýrari mynd af stöðu nemenda en bókstafir. Slíkt geti einnig einfaldað samræmingu á milli skóla og auðveldað framhaldsskólum við mat á frammistöðu nemenda.

Hinsvegar hefði þurft að undirbúa breytingarnar betur og kynna þær áður en skólaárið byrjaði. Það sé ósanngjarnt að nemendur í 10. bekk viti ekki hvernig einkunnagjöf verði háttað í vor. Kennarar geti ekki svarað spruningum um fyrirkomulag, og ekki liggi fyrir kostnaðarmat við innleiðingu á tillögunni.

Betur hefði farið á því að bíða með þessar breytingar, og skýra betur hæfniviðmið sem séu óþarflega flókin. Þá mætti bæta aðgengi að upplýsingum á Mentor, og gera leit að námsmati auðveldara.

Ungheill benda ráðuneytinu á að gera eftirfarandi breytingar:

– Námsmat sé gert sambærilegt á milli skóla.

– Sama einkunnakerfi verði notað í öllum skólum, en ekki bara hvatt til þes

– Allt bilið frá 1 til 10 verði notað í verkefnum, prófum og lokaeinkunnum.

– Að það sé ekki ómögulegt að fá 10, heldur sé hæsta einkunnin notuð eins og A.

Lesa má umsögn Ungheilla hér.

„Þetta er eins og að spila leik og breyta reglunum í miðjum leik,“ segir fulltrúi Ungheilla

Umsögn Ungheilla hefur vakið verðskuldaða athygli, enda hafa hefur ungmennaráð Barnaheilla staðið sig vel í að veita stjónvöldum aðhald þegar kemur að málefnum sem snerta ungmenni beint. Það hafa þau gert með því að senda inn umsagnir, og eins að mæta á fund þingnefnda á Alþingi til að tala máli sínu.

Ronja er í 10. bekk og tók þátt í að skrifa umsögn Ungheilla. Mynd: RÚV – Ragnar Visage

Í viðtali við fréttastofu RÚV líkti Ronja Jakobsdóttir Regal, nýr Liðsfélagi Ungheilla og nemandi í 10. bekk, fyrirhuguðum breytingum þannig að það væri eins og að spila leik þar sem reglunum sé breytt þegar hæst stendur, og þá skilji maður ekki leikinn lengur. 

Ronja, sem tók þátt í að semja umsögn Ungheilla, segir í viðtalinu að hún og vinir hennar hafi miklar áhyggjur af fyrirkomulaginu.

„Þetta er mjög óskiljanlegt fyrir okkur, enda erum við að ljúka námi og við viljum hafa skýrar reglur um hvernig námsárangur okkar verður metinn,“ segir Ronja. „Við höfum mestar áhyggjur af því að ef við skiljum þetta ekki þá erum við hrædd um að menntaskólar skilji þetta ekki og bara að við vitum ekki hvernig okkur gengur. Við erum búin að fá svo fáar kynningar um þetta fyrr en bara núna.“

Þá gagnrýnir Ronja stjórnvöld fyrir að ekkert samráð hafi verið haft við nemendur í sambandi við breytingarnar.

„Okkur finnst að þegar verið er að gera breytingar tengdar okkur þá sé mjög mikilvægt að talað sé við okkur og að við höfum tækifæri til að taka þátt í vinnu við breytingar,“ segir hún. „Við erum tilbúin að tala við alla sem eru tilbúnir að heyra okkar sjónarmið.“

Sjá má viðtalið við Ronju í heild sinni hér..