Ungheill kalla eftir samráði um símabann á fundi með þingnefnd

Ungheill, ungmennaráð Barnaheilla, mættu á fund allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis í síðustu viku til að gera grein fyrir viðhorfi sínu til frumvarps ríkisstjórnarinnar um símabann í skólum. Ungheill vilja ekki að símar verði alfarið bannaðir í skólum, en leggja áherslu á að hafa nemendur með í ráðum þegar reglur um símanotkun eru settar og að fjölga afþreyingarmöguleikum innan skóla.
Fulltrúar Ungheilla voru kallaðir á þingfund eftir að hafa skilað inn umsögn til Alþingis. Þau eru eini hópur ungmenna sem hefur verið kallaður að borðinu við vinnslu þessa máls sem gæti snert daglegt lif allra barna og ungmenna. Þau Karítas Lea Kristjánsdóttir, Indriði Nökkvi Þóreyjarson og Alex Lilja Rún mættu á þingfundinn fyrir hönd stjórnar Ungheilla.
Þegar fulltrúar Ungheilla gengu á fund nefndarinnar fengu þau nefndarfólk til að skila símum sínum í svokallaðan Símaklefa, til að fyrirbyggja óþarfa truflun á fundinum. Með þessu vildu þau sýna þingnefndinni hversu erfitt það getur verið að vera símalaus. Þau fengu þó óskoraða athygli þingmanna í 40 mínútur fyrir vikið.
Í umsögn sinni fögnuðu Ungheill því að löggjafinn tæki málefni ungmenna alvarlega, og að viðurkennt sé að áskoranir tengdar símnotkun í skólum séu raunverulegar. Þau tóku þó skýrt fram að þau teldu bann á símum og snjalltækjum ekki réttu leiðina, heldur óskuðu eftir tækfæri fyrir ungmenni að fá að þróa lausnir með stjórnvöldum. Það sé ekki rétt að taka slíkar ákvarðanir sem snerta líf þeirra beint án samráðs.
Ungheill segja að síminn sé nauðsynlegt tæki í skólastarfi og lífinu sjálfu. Ungmenni læri ekki ábyrga notkun með því að banna símana í skólunum. Þau styðja bann í tímum, en kalla eftir því að þau fái svigrúm þess utan, í frímínútum og annað. Einnig þurfi að bæta afþreyingu í skólunum stórlega, til að koma til móts við krakka ef þau mega ekki nota símana. Þá kalla þau eftir því að fræðsla um ábyrga net- og tækninotkun sé efld inni í skólunum, og að hver skóli móti reglur með nemendunum og taki mið af aðstæðum og þörfum þeirra.
