Umboðsmaður barna tekur undir áhyggjur Barnaheilla vegna þjónustusviptingar við börn á flótta
Barnaheill hafa ítrekað vakið athygli á þeirri þjónustusviptingu sem börn á flótta urðu fyrir þegar málaflokkur fólks sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi, fluttist frá sveitarfélögum til Vinnumálastofnunar snemma árs 2025. Nú tekur Umboðsmaður barna undir áhyggjur Barnaheilla, og óttast um velferð þessara barna, því þau hafa ekki lengur aðgang að leikskóla, frístundaheimili eða tómstundum.
Barnaheill fagna þessari afstöðu Umboðsmanns barna sem birt var nú um miðjan mars. Líkt og Barnaheill hafa sagt, telur umboðsmaður stjórnvöld brjóta gegn réttindum barna á flótta og þar með ákvæðum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sem var lögfestur hér á landi árið 2013.
Barnaheill hafa ítrekað sent formlega kvörtun vegna þessa máls til félags- og húsnæðismálaráðuneytis, Vinnumálastofnunar, og einnig umboðsmanns barna, þar sem því hefur verið harðlega mótmælt að börn séu svipt svo mikilvægri þjónustu sem snýr að velferð þeirra og þroska.
„Ég myndi segja að það væri ekki hollt fyrir neitt barn að vera lokað inni í íbúð allan daginn, en það er raunin þegar eingöngu er boðið upp á lögbundna skólavist en ekkert þess utan,“ segir Tótla I. Sæmundsdóttir. „Það sem er mikilvægt er að börn fái valdeflingu, fái að vera hluti af samfélagi, jafnvel þó að þau séu aðeins hér á landi í stuttan tíma.“
Þetta geta Barnaheill ekki sætt sig við, og hafa því boðið börnum sem hér hafa sótt um alþjóðlega vernd upp á þátttöku í listasmiðjum í samvinnu við Listasafn Reykjavíkur og Leiklistarskóla Borgarleikhússins. Tvö myndlistanámskeið voru haldin á síðasta ári, eitt fyrir hóp úkraínskra barna og svo annað á arabísku fyrir mjög fjölbreyttan hóp barna á flótta. Nú í mars hafa svo börn í móttökudeildum tveggja skóla í Hafnarfirði sótt leiklistarnámskeið á vegum Borgarleikhússins fyrir tilstilli Barnaheilla.
Umboðsmaður barna hefur með bréfi sínu til félags- og húsnæðismálaráðherra tekið undir afstöðu Barnaheilla, og telur áríðandi að ráðuneytið endurskoði þjónustu sína við börn á flótta. Umboðsmaður telur ekki fullnægjandi að vísa eingöngu til útlendingalaga líkt og Vinnumálastofnun og ráðuneytið hafa gert, heldur telur að hér sé brotið á réttindum barna samkvæmt Barnasáttmálanum.
Félags- og húsnæðismálaráðherra sagði í fréttum RÚV að til stæði að endurskoða þessa ákvörðun. Barnaheill munu fylgjast vel með framvindu mála á næstu vikum.
