Þekkir þú rauðu ljósin?
Barnaheill – Save the Children á Íslandi verða með opið fræðsluerindi um kynferðisofbeldi gegn börnum fimmmtudaginn 29. janúar kl. 14:00 – 15:30.
Fræðsluerindið er hugsað fyrir foreldra, forsjáraðila og fólk sem vinnur með eða í þágu barna.
Upplýst umræða, fræðsla og stuðningur við börn og ungmenni, foreldra og fagfólk sem starfar með börnum, er mikilvæg forvörn og nauðsynlegt tæki í baráttunni gegn kynferðisofbeldi gegn börnum.
Fólk sem starfar með börnum og ungmennum og foreldrar/forsjáraðilar ættu að hafa grunnþekkingu á kynferðisofbeldi til að geta komið auga á rauðu ljósin, gripið til réttra viðbragða, þekkt helstu úrræði og þá aðstoð sem er í boði.
Fyrirlesari á fundinum er Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir verkefnastýra ofbeldisforvarna og kynheilbrigðismála hjá Barnaheillum. Hún hefur áralanga reynslu af jafnréttis-, kynheilbrigðis- og kynferðisofbeldismálum tengdum börnum og ungmennum, bæði hvað varðar forvarnir og viðbrögð.
