Styrktu neyðarsöfnun Barnaheilla með kórtónleikum

Við fengum dásamlega heimsókn í gær þegar ungir kórsöngvarar litu við á skrifstofunni ásamt kórstjóranum Jóhönnu Halldórsdóttur. Þau komu færandi hendi með styrk sem safnaðist á tvennum kórtónleikum í maí. Tónleikarnir voru haldnir til styrktar neyðarsöfnun Barnaheilla og voru salir troðfullir á báðum tónleikum.
Meira en 300 börn tóku þátt í tónleikunum sem fóru fram í Langholtskirkju og Guðríðarkirkju. Á tónleikunum í Langholtskirkju komu fram nemendur úr Rimaskóla, Lindaskóla og Vogaskóla, alls um 160 börn. Í Guðríðarkirkju tóku svo um 145 börn þátt frá Ingunnarskóla, Sæmundarskóla og Dalsskóla. Herra Hnetusmjör kom fram með þeim við mikinn fögnuð.
Alls söfnuðu krakkarnir einni og hálfri milljón króna sem rennur í neyðarsöfnun Barnaheilla.
Við þökkum Jóhönnu og krökkunum innilega fyrir stuðninginn.