Styrktartónleikar Barnaheilla 6. september í Salnum

Tónlistarfólkið Mugison, Ellen Kristjánsdóttir, KK, Ragnheiður Gröndal, Pétur Ben og Hipsumhaps koma fram á tónleikum Barnaheilla í Salnum í Kópavogi, sunnudaginn 6. september,kl. 20:00 til að safna fyrir nýjum grunnskóla í afskekkta þorpinu Macca í Síerra Leóne.

Tónleikarnir eru lokahnykkur á árlegri haustsöfnun Barnaheilla – Save the Children fyrir alþjóðleg verkefni samtakanna. Söfnunin hefst fimmtudaginn 27. ágúst og lýkur með tónleikunum sunnudagskvöldið 6. september.

Miðaverðið rennur óskert til að fjármagna skólabyggingu í Macca, og mun gjörbylta lífi og framtíð barna í þorpinu sem fá nú tækifæri til menntunar.

Barnaheill starfa með börnum í fátækasta héraði Síerra Leóne

Barnaheill, með stuðningi frá utanríkisráðuneytinu, hafa starfað í Pujehun-héraði frá árinu 2021 með sérstaka áherslu á menntun og að vernda börn gegn ofbeldi. Pujehun er eitt fátækasta og strjálbýlasta hérað í Síerra Leóne. Þar er skortur á heilbrigðis- og menntaþjónustu, vegir eru afar torfærir og meirihluti íbúa hefur aldrei sótt skóla.

Sjálfstæð úttekt á verkefni Barnaheilla í héraðinu hefur sýnt fram á framúrskarandi árangur. Á síðasta ári var því ákveðið að útvíkka verkefnið og fjölga samstarfsþorpum til að ná til fleiri jaðarsettra barna og skapa þeim betri skilyrði til náms og þroska.

Loksins skóli fyrir börn í Macca

Ákveðið var að ráðast í byggingu skólans í Macca eftir vettvangsheimsókn Barnaheilla til Síerra Leóne. Þá kom í ljós að enginn skóli væri til staðar fyrir börn í þorpinu og aðstaða til náms var því óásættanleg.  

Framkvæmdir hófust þegar í byrjun þessa árs og nú er verið að leggja lokahönd á frágang svo börnin geti hafið nýtt skólaár í nýja skólanum. Sérstaklega hefur verið hugað að aðgengi að byggingunni svo öll börn geti sótt skólann, og einnig var borað fyrir vatni og gerður brunnur sem nýtist öllum íbúum í Macca og nágrenni.

Barnaheill eru afar þakklát tónlistarfólkinu sem leggur þessu mikilvæga verkefni lið. Hægt er að kaupa miða á tónleikana hér. 

Tónleikarnir verða haldnir sunnudaginn 6. september kl. 20:00 í Salnum, Hamraborg 6 í Kópavogi.

Ef þú kemst ekki á tónleikana en vilt styrkja verkefnið er tekið við framlögum hér:

0357-26-2802

kt 521089-1059