Þú getur breytt lífi barns í dag
Hvort sem þú velur að gefa stakan styrk eða gerast Heillavinur, þá hjálpar þú okkur að standa vörð um réttindi barna og styðja börn sem búa við erfiðar aðstæður. Með stuðningi þínum getum við haldið áfram mikilvægu starfi í þágu barna, bæði hér á Íslandi og víða um heim. Saman getum við skapað öruggari framtíð fyrir börn og tryggt að fleiri börn fái að alast upp við öryggi, virðingu og tækifæri til að dafna.
Þú hjálpar börnum að fá menntun
Menntun getur breytt lífi barns. Hún veitir börnum öryggi og sjálfstæði og opnar dyrnar að tækifærum fyrir börn að byggja upp betri framtíð fyrir sig, fjölskyldur sínar og samfélagið í heild.
Þú veitir börnum heilbrigðisþjónustu
Með stuðningi þínum getum við staðið vörð um rétt barna til heilbrigðis og stuðlað að því að fleiri börn fái þá þjónustu og umönnun sem þau þurfa til að lifa öruggu og heilbrigðu lífi.
Þú veitir lífsnauðsynlega aðstoð
Stríð, hamfarir og neyðarástand bitna alltaf harðast á börnum. Með stuðningi þínum getum við brugðist hratt við og veitt börnum þá neyðar- og mannúðaraðstoð sem þau þurfa mest á að halda.
Þú hjálpar börnum að búa við öryggi
Alltof mörg börn búa við óöryggi í daglegu lífi sínu. Barnaheill vinna að því að öll börn fái að alast upp við öryggi, stuðning og virðingu — heima, í skóla, í frístundum og í samfélaginu.
Þú verndar börn gegn ofbeldi
Barnaheill eru mannréttindasamtök sem berjast gegn ofbeldi á börnum, svo sem kynferðisofbeldi, líkamlegu ofbeldi og einelti. Samkvæmt Barnasáttmálanum eiga öll börn rétt á vernd gegn hvers kyns ofbeldi, og við vinnum ávallt með það að leiðarljósi jafnt í innanlandsstarfi sem í alþjóðlegum verkefnum.
Þú stuðlar að öflugu forvarnarstarfi á Íslandi
Fræðsla og upplýst umræða er besta forvörnin þegar kemur að einelti og ofbeldi gegn börnum og svo að við sem samfélag verðum betur í stakk búin til að takast á við og koma í veg fyrir óæskilega hegðun. Barnaheill vinna með börnum og ungmennum að forvörnum, og bjóða upp á námskeið og fyrirlestra þar sem hægt er að öðlast þekkingu og fræðslu sem vinna gegn ofbeldi á börnum.
Hér hefur þú áhrif
SÍERRA LEÓNE
Barnaheill hafa starfað í Síerra Leóne frá árinu 2021 með áherslu á vernd gegn ofbeldi á börnum. Verkefnið er unnið í 10 afskekktum samfélögum í fátækasta héraði landsins. Í Síerra Leóne er eitt mesta kynjamisrétti í heiminum og eru stúlkur og konur útsettar fyrir ofbeldi af ýmsu tagi.
MADAGASKAR
Í maí 2025 hófu Barnaheill nýtt loftslagsverkefni í Madagaskar. Verkefnið sem ber heitið Miavotse mun ná til 4.000 barna og fullorðinna í Androy héraði á sunnanverðri eyjunni og stendur yfir í 18 mánuði. Verkefnið miðar að því að tryggja velferð barna og draga úr fátækt á þurrkasvæðum.
ÍRAK
Þann 1. apríl 2025 hófu Barnaheill mannúðarverkefni í norðurhluta Íraks. Verkefnið miðar að því að efla vernd og vellíðan berskjaldaðra barna og umönnunaraðila þeirra sem dvelja í flóttamannabúðum með því að styrkja barnaverndarkerfi, bæta aðgengi að nauðsynlegri þjónustu og efla seiglu í samfélaginu.
Ísland
Barnaheill halda úti verkefnum sem snúa að markvissum forvörnum gegn einelti og kynferðisofbeldi og bjóða upp á námskeið og fyrirlestra þar sem hægt er að öðlast þekkingu og fræðslu og bæta verklag í forvörnum gegn ofbeldi á börnum.
VIÐBRAGÐSSJÓÐUR
Á hverju ári veita Barnaheill fjárframlög í viðbragðssjóð alþjóðasamtaka Barnaheilla – Save the Children. Viðbragðssjóðurinn gerir alþjóðasamtökunum kleift að bregðast hratt við þegar upp kemur neyð í heiminum, t.a.m. vegna náttúruhamfara eða átaka.
Tansanía
Barnaheill hófu verkefni í Tansaníu í byrjun árs 2026 og stendur það verkefni yfir í fjögur ár. Meginmarkmið verkefnisins er að koma í veg fyrir kynbundið ofbeldi og kynferðisofbeldi og tryggja að þolendur fái viðeigandi stuðning.
Algengar spurningar
Fæ ég skattaendurgreiðslu ef ég styrki?
Þegar þú styrkir Barnaheill – Save the Children á Íslandi getur framlag þitt veitt þér rétt til skattfrádráttar með lækkun á tekjuskattsstofni. Þetta á bæði við um einstakar gjafir og reglulegan stuðning Heillavina.
Til að fá frádrátt þurfa framlög þín til skráðra almannaheillafélaga að nema samtals að lágmarki 10.000 kr. á ári. Einstaklingar geta fengið frádrátt að hámarki 350.000 kr. á ári og hjón eða samskattað sambúðarfólk allt að 700.000 kr. á ári.
Barnaheill senda allar upplýsingar til Skattsins og því birtist frádrátturinn sjálfkrafa á skattframtalinu þínu. Endanlegur skattalegur ávinningur fer eftir tekjum og skattstöðu hvers og eins.
Með því að styrkja Barnaheill leggur þú þitt af mörkum til að bæta líf barna um allan heim og nýtir um leið þann skattalega ávinning sem fylgir því að styrkja almannaheillastarf.
Hvernig getur fyrirtækið mitt stutt Barnaheill?
Fyrirtæki geta stutt starf Barnaheilla – Save the Children á Íslandi með fjárframlögum, reglulegum stuðningi eða samstarfsverkefnum.
Með stuðningi fyrirtækja geta Barnaheill unnið að því að vernda réttindi barna, efla fræðslu og forvarnir, hafa áhrif á stefnumótun í þágu barna og styðja við alþjóðlegt þróunar- og neyðarstarf Save the Children.
Barnaheill eru hluti af Save the Children, stærstu sjálfstæðu barnaréttindahreyfingu heims, sem starfar í yfir 100 löndum. Saman getum við unnið að því að öll börn fái að alast upp við öryggi, njóti verndar og hafi tækifæri til að læra og þroskast.
Ef fyrirtækið þitt hefur áhuga á að styðja starf Barnaheilla eða ræða mögulegt samstarf, hafðu endilega samband.
Langar þig að ræða hvernig fyrirtækið þitt getur stutt Barnaheill?
Hafðu samband
Harpa Pétursdóttir
Markaðs- og fjáröflunarstjóri
- harpa@barnaheill.is
- 8677504
Hvaða samstarfsleiðir eru í boði?
- Fyrirtæki geta valið þá samstarfsleið sem hentar best hverju sinni. Meðal möguleika eru:
- Beinn styrkur til starfs Barnaheilla eða til afmarkaðra verkefna.
- Reglulegur fyrirtækjastuðningur, þar sem fyrirtækið styrkir starf Barnaheilla með mánaðarlegu eða árlegu framlagi.
- Stuðningur við þróunarverkefni Barnaheilla í samstarfslöndum Save the Children.
- Styrkir til neyðaraðstoðar, þegar börn verða fyrir áhrifum stríðs, náttúruhamfara eða annarra neyðarástanda.
- Samstarf um vitundarvakningar og viðburði sem styðja við réttindi barna.
- Markaðssamstarf, þar sem fyrirtæki og Barnaheill þróa saman verkefni eða herferðir sem skapa samfélagsleg áhrif.
- Fjáröflunarverkefni með starfsfólki eða viðskiptavinum, til dæmis söfnunarátök eða aðrar sameiginlegar aðgerðir.
Við leggjum áherslu á að finna samstarfsform sem hentar markmiðum fyrirtækisins og skapar sem mest áhrif fyrir börn.
Langar þig að ræða hvernig fyrirtækið þitt getur stutt Barnaheill?
Hafðu samband
Harpa Pétursdóttir
Markaðs- og fjáröflunarstjóri
- harpa@barnaheill.is
- 8677504
Hvernig breyti ég greiðslukortaupplýsingum eða mánaðarlegu framlagi?
Á Mínum síðum getur þú breytt mánaðarlegu framlagi þínu, uppfært greiðslukortaupplýsingar, gert tímabundið hlé á stuðningi þínum eða hætt mánaðarlegum stuðningi.
Ef þú ert með frekari spurningar geturðu haft samband í síma 555-5555 eða á barnaheill@barnaheill.is
Aðrar leiðir til að styrkja
Þegar neyð skellur á þurfa börn vernd, mat, hreint vatn, heilbrigðisþjónustu og öruggt skjól. Með framlagi í neyðarsjóð Barnaheilla hjálpar þú okkur að bregðast hratt við þegar börn þurfa mest á aðstoð að halda.
Í verslun Barnaheilla finnur þú gjafavörur sem gleðja og skipta máli. Hvort sem þú ert einstaklingur að leita að fallegri gjöf eða fyrirtæki sem vill kaupa gjafir fyrir starfsfólk eða viðskiptavini, styður þú verkefni Barnaheilla fyrir börn með því að versla hjá okkur.
