Stuttmyndir eftir 12 ára snillinga í Bíó Paradís
Sexan stuttmyndasamkeppni tekur þátt í Alþjóðlegri barnakvikmyndahátíð í ár. Í fyrsta skipti verður hægt að sjá allar sigurmyndir Sexunnar frá upphafi á stóra tjaldinu í Bíó Paradís.
Laugardaginn 2. nóvember kl. 13 gefst almenningi kostur á að sjá myndirnar og taka þátt í örnámskeiði í stuttmyndagerð sem verður stýrt af Örnu Magneu Danks, leikkonu og fyrrum formanni dómnefndar Sexunnar. Ókeypis aðgangur er á allar myndir á Alþjóðlegri barnakvikmyndahátíð.
Sérstök fræðsludagskrá sniðin að skólahópum verður einnig haldin fimmtudaginn 30. október en þar munu fulltrúar frá samfélagslöggum og Netvís halda fræðsluerindi fyrir ungmenni um stafrænt ofbeldi. Þar munu sigurvegarar frá því í fyrra einnig stíga á stokk og miðla af reynslu sinni við gerð stuttmyndarinnar. Ungmennum og grunnskólum utan höfuðborgarsvæðisins gefst einnig kostur á aðhorfa á Sexumyndirnar í streymisveitu hátíðarinnar.
Nánar um Sexuna:
Sexan er jafningjafræðsluverkefni sem ætlað er að fræða ungt fólk umbirtingarmyndir stafræns ofbeldis. Viðfangsefni stuttmyndanna er tæling, nektarmynd, samþykki eða slagsmál ungmenna. Auk þess er opinn flokkur fyrir önnur mikilvæg málefni sem 12-13 ára krökkum þykja mikilvægt að lyfta upp. Stuttmyndirnar mega mest vera 3 mínútur að lengd og hver skóli má mest senda þrjár stuttmyndir. Nemendur hafa frjálsar hendur með handritagerð, kvikmyndatöku og eftirvinnslu. Nemendur af erlendum uppruna, hinsegin og fatlaðir nemendur eru sérstaklega hvattir til að taka þátt.Kjarni verkefnisins er að ungt fólk fræði ungt fólk. Þau eru best til þess fallin að varpa ljósi á þeirra veruleika og hvar helstu áskoranirnar leynast í daglegu lífi ungmenna. Verðlaunamyndirnar eru sýndar á vef KrakkaRÚV, streymisveitu Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Bíó Paradís auk þess sem þær eru gerðar aðgengilegar fyrir alla grunnskóla landsins sem fræðsluefni um stafrænt ofbeldi og getur þannig nýst þeim skólum sem ekki taka þátt sem og komandi kynslóðum. Vinningsmyndirnar má einnig finna bæði á Youtube rás Neyðarlínunnar og á vef Neyðarlínunnar: 112.is/sexan en þar má einnig finna frekari fræðslu um viðfangsefnin, innsendingargáttina og góð ráð fyrir stuttmyndagerð.
