Stuðningur Barnaheilla eykur réttindi og velferð barna í Kúrdistan

Aras* er níu ára og hefur alla ævi búið í flóttamannabúðum í Kúrdistan, í norðurhluta Íraks. Þrátt fyrir að tæpur áratugur sé liðinn frá því að valdatíma hryðjuverkasamtakanna Íslamska ríkisins lauk í sjálfstjórnarhéraðinu, eru íbúar þar enn að glíma við afleiðingarnar. Milljónum manna var stökkt á flótta á meðan átökunum stóð og um 1,1 milljón barna þarf á mannúðaraðstoð að halda. Nærri ein milljón manns er enn á vergangi í landinu og um 3,2 milljónir barna sækja ekki skóla.

Aras, Kolbrún og amma hans í flóttamannabúðum í Kúrdistan.

Aras þekkir ekki annað en lífið í flóttamannabúðunum. Foreldrar hans yfirgáfu hann þegar hann var ungabarn, og nú býr hann hjá ömmu sinni og frænku.  Aras hefur notið stuðnings Barnaheilla – Save the Children, sem hafa starfað í flóttamannabúðum í suðurhluta Kúrdistan með sérstaka áherslu á að tryggja réttindi, vernd og vellíðan barna.

Sálrænn stuðningur er mikilvægur hluti af því starfi, til að vinna úr áföllum sem börn hafa orðið fyrir. Með slíkum stuðningi fá börn sem hafa upplifað erfiðar aðstæður tækifæri til að styrkja félagsleg tengsl og auka þrautseigju og seiglu. Þetta gera þau meðal annars með því að taka þátt í HEART – Healing and Education through the Arts – sem eru listasmiðjur fyrir börn þar sem þau fá tækifæri til að tjá tilfinningar sínar í gegnum list og skapandi starf. Þar fá börn öruggt rými til að tjá sig, vinna úr reynslu sinni og eiga jákvæð samskipti við önnur börn.

Stuðningur Barnaheilla nær einnig til fjölskyldu barnanna.  Frænka Aras fékk til að mynda saumavél frá Barnaheillum sem hún hefur getað nýtt til að afla tekna fyrir heimilið. Þannig getur stuðningur við fjölskylduna alla stuðlað að fjárhagslegum tækifærum og aukið sjálfbærni og sjálfstæði forsjáraðila og barna til lengri tíma.

„Það er ómetanlegt að fá að hitta börnin og sjá verkefnin okkar á vettvangi. Við gerum okkur þá enn betur grein fyrir mikilvægi þess að börn fái tækifæri til að tjá sig, finni stuðning og hafi áhrif á eigið líf,“ segir Kolbrún Pálsdóttir, verkefnisstjóri erlendra verkefna hjá Barnaheillum, sem heimsótti verkefnasvæðið í Írak í lok september. „Það er mikilvægt að sjá að fjölskyldur barnanna njóta líka góðs af verkefnunum sem tryggir þeim betri og öruggari framtíð.“

Kolbrún tók þátt í HEART listasmiðju í flóttamannabúðunum Kabarto, þar sem hún hitti Aras og fjölskyldu hans. Hún heimsótti einnig CwD í Duhok sem er miðstöð fyrir fötluð börn. Þar fékk hún innsýn í það mikilvæga starf sem þar fer fram og tók þátt í leirsmiðju heyrnalausra barna.  

Ungt fólk í lykilhlutverki

Kolbrún sótti einnig ráðstefnuna From Youth Voices to Public Investment þar sem Barnaheill í Írak kynntu nýja ungmennastefnu samtakanna, Youth Strategy 2027–2032.

Ungmennaráðstefna í Kúrdistan í norðurhluta Íraks, þar sem ný ungmennastefna til fimm ára var kynnt.

Ráðstefnan var vel sótt og þar voru ungmenni í lykilhlutverki.  Meðal þátttakenda voru einnig háttsettir embættismenn og ráðherrar. Nýja stefnan leggur áherslu á þátttöku ungs fólks og að raddir þeirra fái aukið vægi í ákvörðunum og verkefnum sem varða líf þeirra.

Kolbrún fór auk þess á fund með Kwestan Mohammed, félags- og vinnumálaráðherra Kúrdistan í Írak. Á fundinum var meðal annars rætt um þær áskoranir sem börn og ungmenni standa frammi fyrir, réttindi þeirra, félagslega vernd og mikilvægi þess að börn og ungmenni fái raunveruleg tækifæri til þátttöku í ákvörðunum sem varða þeirra líf.

„Það er frábært að fá innsýn í starfið sem við hjá Barnaheillum styðjum í Írak og að sjá þær miklu framfarir sem hafa átt sér stað í að tryggja réttindi, vernd og vellíðan barna frá því að við hófum samstarf hér í Kúrdistan,“ segir Kolbrún. „Það á jafnt við beinan stuðning okkar við börnin og fjölskyldur þeirra, og samskipti okkar við stjórnvöld og stofnanir sem styðja við réttindi barna á svæðinu.“

Barnaheill á Íslandi hafa starfað með Save the Children í Írak frá árinu 2025, með stuðningi frá utanríkisráðuneyti Íslands.