Strákar spjalla saman hlýtur styrk úr Styrktarsjóði geðheilbrigðis

Í gær fór fram úthlutun úr Styrktarsjóði geðheilbrigðis en sérstök áhersla var lögð á geðheilbrigði barna og ungmenna þetta árið. Barnheill hlutu styrk úr sjóðnum fyrir verkefnið Strákar spjalla saman. Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, verkefnastýra ofbeldis- og kynheilbrigðismála hjá Barnaheillum og Hjörleifur Steinn Þórisson veittu styrknum viðtöku en Hjörleifur og Ragnar Harðarsson munu leiða verkefnið sem hefst eftir áramót.

Strákar spjalla saman byggir á valdeflingu unglingsstráka í gegnum einlægt samtal við aðra stráka. Tíu pláss eru í hverjum hópi og allir skuldbinda sig til að mæta og taka þátt af heilum hug gegnum allt ferlið. Hópurinn hittist 1 sinni í viku í 6 vikur í senn. Tveir hópstjórar stjórna samtalinu en í hverri viku er fyrirfram ákveðið viðfangsefni tekið fyrir s.s. geðheilsa og vanlíðan, kynlíf og klám, sjálfsmyndin, kynferðisofbeldi o.fl. Verkefnið er þjálfun í samskiptum, að rýna inn á við, taka afstöðu og æfa sig í að setja orð á tilfinningar í öruggu rými.