Krefjast þess að stjórnvöld grípi til róttækra aðgerða

Í dag lauk vitundarvakningunni #ÉGLOFA formlega þegar stjórnvöldum var afhent áskorun frá 120 ungmennum úr 10. Bekkjum grunnskóla og framhaldsskóla víðsvegar um landið. Ungmennin ræddu við þingmenn og mennta- og barnamálaráðherra og kröfðust þess að stjórnvöld grípi til róttækra aðgerða í baráttunni gegn kynferðisofbeldi á börnum.

Í tengslum við vitundarvakninguna héldu Barnaheill tvær vinnustofur með rúmlega 120 ungmennum úr 10. bekkjum grunnskóla og framhaldsskólum víðsvegar um landið. Umræðuefnið var hvað samfélagið gæti gert betur til að sporna gegn kynferðisofbeldi gegn börnum og ungu fólki á Íslandi.

Meginniðurstaða úr samtali ungmennanna er að fræðslu um vandann og viðbrögð við honum er verulega ábótavant. Fæst ungmennanna sögðust fá slíka fræðslu reglulega líkt og tíðkast t.d. með umferðarreglur eða fræðslu um skaðsemi tóbaks- og vímuefnaneyslu. Þrátt fyrir að forvarnarteymi grunnskóla eigi að sjá til þess að öll börn fái fræðslu um kynbundna og kynferðislega áreitni og ofbeldi árlega virðist sem hún sé ekki að skila sér til þeirra, hvorki markvisst né í hverjum skóla.

Samskipti er annar þáttur sem ungmennin lögðu mikla áherslu á. Samskipti milli foreldra og barna bar þar hæst og ljóst er að ungmenni telja foreldra skorta þekkingu og þor til að ræða við þau um málefnið. Ungmennin kalla eftir því að fullorðnir hlusti betur, geri ekki lítið úr upplifun þeirra, bregðist við og fræði þau um hætturnar s.s. á samfélagsmiðlum og víða í samfélaginu. Einnig óska þau eftir aukinni tengslamyndun milli ungmenna og fullorðinna og opinskárri umræðu um óheilbrigð samskipti og ofbeldi.

Kröfur ungmenna til stjórnvalda:
1. FRÆÐSLA TIL BARNA OG UNGMENNA
Auka þarf fjármagn í forvarnir og fræðslu og leggja áherslu á að hvert einasta barn og ungmenni fái fræðslu árlega.

2. FRÆÐSLA TIL FORELDRA
Tryggja þarf reglulega fræðslu frá fagaðilum fyrir börn og fullorðna og að samfélagið viðurkenni vandann og þori að tala upphátt um hann

3. FAGFÓLK TIL STAÐAR Í ÖLLUM SKÓLUM
Tryggja þarf reglulega fræðslu frá fagaðilum fyrir börn og fullorðna og að samfélagið viðurkenni vandann og þori að tala upphátt um hann.

4.FRÆÐSLA OG FORVARNIR SKILI SÉR
Tryggja þarf að sú fræðsla sem gert er ráð fyrir í lögum skili sér til barna og að forvarnarteymi allra skóla séu virk.

5. STYTTA BIÐTÍMA
Stytta þarf biðtíma eftir sálfræðilegum stuðningi fyrir brotaþola

6. AUKA STUÐNING VIÐ GERENDUR
Auka þarf stuðning og úrræði fyrir unga gerendur


Barnaheill stóðu fyrir vitundarvakningunni #ÉGLOFA í apríl og var hún ákall til fullorðinna til fullorðinna í samfélaginu um að leggja sitt af mörkum til að útrýma kynferðisofbeldi gegn börnum og ungmennum á Íslandi. 

Við þökkum viðtökurnar á Alþingi í dag og vonumst til að sjá aukna fræðslu og viðbrögð við kröfum ungmennanna. Við þökkum einnig öllum þeim sem tóku þátt og lögðu sitt af mörkum í þessari mikilvægu baráttu.