Stjórn Ungheilla stækkar og Liðsfélagar boðin velkomin

Ungheill – ungmennaráð Barnaheilla fagnaði viðburðaríku starfsári á nýafstöðnum aðalfundi félagsins. Á fundinum fór Indriði Nökkvi Þóreyjarson yfir helstu verkefni og árangur stjórnar Ungheilla árið 2025-2026. Hægt er að lesa ársskýrsluna hér á vefnum. 

Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir, formaður Barnaheilla, var gestur aðalfundarins og lýsti mikilli ánægju með starf Ungheilla sem hefðu komið af krafti inn í umræður um mikilvæg mál – oft með sjónarhorn sem annars hefðu ekki fengið mikinn hljómgrunn í samfélaginu.  

Kosið var um þrjú sæti í stjórn Ungheilla á aðalfundinum. Alex Lilja Rún var endurkjörin og Arnfríður María Snævarsdóttir og Elijah Kristinn Tindsson komu ný inn í stjórn. Þau bætast í öflugan hóp stjórnarfólks, en þau Indriði Nökkvi Þóreyjarson, Ástrós Inga Jónsdóttir, Karítas Lea Kristjánsdóttir, Mia Ðuric og Sóley Lóa Smáradóttir halda áfram í stjórninni. Stjórn Ungheilla er því fullmönnuð á starfsárinu sem nú er að hefjast. 

Áhugasöm ungmenni á aldrinum 13-25 ára sem vilja vinna að því að láta skoðanir sínar og hugmyndir heyrast í þágu réttinda barna eru hvött til að taka þátt í starfi Ungheilla. Á vefnum ungheill.is er hvenær sem er hægt að skrá sig sem almennan félaga eða sem Liðsfélaga Ungheilla. Liðsfélagar fá boð á alla stjórnarfundi til að taka þátt í því að móta starfið með stjórnarfólki sem kosið er á aðalfundi á hverju ári.