Stemmning og stuð á fyrsta Vináttudegi Barnaheilla

Það var ótrúleg stemmning í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í morgun þegar um 500 leikskólabörn komu þar saman til að fagna vináttu og gleði. Þetta var í fyrsta sinn sem Barnaheill – Save the Children halda sérstakan Vináttudag, sem er uppskeruhátíð fyrir elstu leikskólabörnin í Vináttuskólum Barnaheilla.

Um 500 börn tóku þátt í fyrsta Vináttudegi Barnarheilla
Um 500 börn tóku þátt í fyrsta Vináttudegi Barnaheilla í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Ljósmynd / Róbert Reynisson.

Krakkarnir komu úr um 30 leikskólum allsstaðar að af höfuðborgarsvæðinu, en allir eiga skólarnir það sameiginlegt að vinna með Vináttu, forvarnarverkefni Barnaheilla gegn einelti, og þar sem unnið er með að efla félagsleg tengsl og vináttu. Um 65% leikskóla á landinu hafa fengið fræðslu og tekið þátt í námskeiðum Barnaheilla og nýta sér efni samtakanna.

Bangsinn Blær, sem er táknmynd Vináttuverkefnisins, tók á móti krökkunum þegar þau streymdu inn í garðinn. Krakkarnir komu á harðahlaupum til að fá að knúsa Blæ og láta taka af sér mynd með honum áður en skemmtunin hófst. Blær dansaði svo og söng Vináttusöngva með krökkunum, á meðan þeir biðu eftir að Páll Óskar stigi á svið.

Páll Óskar tróð upp á Vináttudegi Barnaheilla
Páll Óskar skemmti börnunum af sinni alkunnu snilld og Blær dansaði með. Ljósmynd / Róbert Reynisson.

Hápunkturinn var svo þegar Páll Óskar fékk alla krakkana til að syngja með sér Eitt af blómunum, en lagið fjallar einmitt um það að uppræta einelti á öllum stigum lífsins. Öll brekkan iðaði af gleði þegar Palli söng fjögur lög og bað þau um að hoppa, klappa, og dansa með sér og Blæ.

Börnin þekkja Vináttuverkefnið mæta vel og sérstaklega bangsann Blæ, sem birtist þeim nú í fyrsta sinn í fullri stærð. Margir leikskólar færa hverju barni lítinn Blæ að gjöf við upphaf skólagöngunnar, sem er þeirra eign út leikskólagönguna. Litli Blær er notaður í kennslu og samverustundum, hann er vinur barnanna og huggun í dagsins önn. Þau fá svo að taka hann með heim við útskrift úr leikskólanum.

Eftir skemmtunina fengu börnin hressingu í boði Myllunnar og Ölgerðarinnar. Stórt hrós fer til allra krakkanna sem voru til fyrirmyndar og sýndu vináttu og gleði í verki allan tímann. Þessar skemmtilegu fréttir um vináttudag Barnaheilla birtust í kvöldfréttum RÚV og á SÝN.

 

Blær tók á móti börnunum og knúsaði þau á Vináttudeginum
Allir vildu knúsa stóra Blæ og fá mynd af sér með honum.
Blær syngur og dansar uppi á sviði
Bangsinn Blær söng og dansaði uppi á sviði. Ljósmynd / Róbert Reynisson 
Páll Óskar á Vináttudegi
Brekkusöngurinn með Páli Óskari hljómaði um allan Fjölskyldu- og húsdýragarðinn. Ljósmynd / Róbert Reynisson.