Stefnir í djúpa mannúðarkrísu vegna keðjuverkandi áhrifa átakanna í Mið-Austurlöndum

Mikilvæg hjálpargögn Barnaheilla – Save the Children eru nú föst í Dúbaí þar sem lokast hefur fyrir flutningaleiðir vegna átakanna í Mið-Austurlöndum. Það þýðir að lífsnauðsynleg lyf, lækningavörur og matvæli munu nú ekki berast um 500.000 börnum í Súdan, Jemen og Afganistan, að sögn Barnaheilla – Save the Children.

Samtökin vara við því að afleiðingar átakanna muni stigmagnast á næstu vikum og ef heldur áfram sem horfir stefni í djúpa mannúðarkrísu vegna keðjuverkandi áhrifa sem mun gæta um allan heim.

„Umræðan um hversu mikill mannúðarvandi fylgir þessum átökum hefur svolítið týnst í umræðunni um efnahagslegar og pólitískar afleiðingar þeirra fyrir heimsbyggðina. Það er meira rætt um hækkun á eldsneytisverði og öðrum aðföngum heldur en um fólkið sem hefur fallið í loftárásum, og börnin sem eru á vergangi eða fá ekki lífsnauðsynlega aðstoð til að lifa af,“ segir Tótla Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla.

Börn bera þyngstu byrðarnar í Líbanon

Imad 5 ára leiðir önnur börn í leik á barnvænu svæði Save the Children í Líbanon, þar sem starfsmenn samtakanna veita sálrænan stuðning í gegnum leiki og tjáningu.
Imad 5 ára leiðir önnur börn í leik á barnvænu svæði Save the Children í Líbanon, þar sem starfsmenn samtakanna veita sálrænan stuðning í gegnum leiki og tjáningu.

Um ein milljón manna, þar á meðal rúmlega 300.000 börn, hafa verið neydd á flótta innan í Líbanon á síðustu tveimur vikum. Um eitt þúsund manns hafa verið drepin í landinu frá því að loftárásir hófust í byrjun mars, og þar af létu að minnsta kosti  111 börn lífið. Á annað þúsund barna hafa verið særð eða drepin á öllu svæðinu síðan átökin brutust út í lok febrúar.

Starfsfólk Barnaheilla – Save the Children í Líbanon segir að fjölskyldur hafi þurft að flýja án þess að hafa tíma til að pakka niður helstu nauðsynjum eins og mikilvægum skilríkjum, lyfjum og fatnaði. Aðgangur að heilbrigðisþjónustu hefur raskast að verulegu leyti. Fólk sem þarf á reglulegri meðferð að halda, svo sem blóðskilun eða langvarandi lyfjameðferð, á erfitt með að fá nauðsynlega læknisaðstoð.

Yfir 70% skóla og íþróttamannvirkja í Líbanon hafa verið nýtt sem fjöldahjálparstöðvar fyrir þann mikla fjölda fólks sem er á flótta, sem þýðir að nánast ekkert skólahald er í landinu og flest börn missa því úr námi. Í skólunum eru aðstæður víða óboðlegar, yfir 50 manns deila með sér einu salerni, aðgangur að eldunaraðstöðu er takmarkaður, og sárlega vantar teppi, ofna og annað sem getur veitt skjól í köldum byggingum.

Hálfri milljón barna stefnt í hættu vegna lokunar á flutningaleiðum hjálpargagna

Þá er lífi um 500.000 börnum og fjölskyldum þeirra í Súdan, Jemen og Afganistan, stefnt í hættu því mikilvæg lyf, svo sem sýklalyf, malaríulyf, ormalyf, verkjalyf og hitalyf, eru nú föst í Dúbaí vegna lokunar alþjóðlegra siglingaleiða um Hormússund.

Hækkandi eldsneytisverð ýtir einnig undir þá óðaverðbólgu sem er viðvarandi í Súdan. Verð á matvælum og öðrum nauðsynjavörum heldur áfram að hækka. Það er því æ erfiðara að veita nauðsynlega mannúðaraðstoð í landinu.

Frekari truflanir á framboðskeðjum gætu einnig haft mikil áhrif á innflutning á matvælum, eldsneyti og lyfjum um allan heim.

Barnaheill hafa efnt til neyðarsöfnunar fyrir verkefni á svæðinu til að svara neyðarkalli alþjóðasamtaka Barnaheilla – Save the Children í Mið-Austurlöndum. Neyðarbeiðnin samsvarar 20 milljörðum íslenskra króna fyrir mannúðarverkefni í Líbanon, Palestínu, Sýrlandi, Írak, Jórdaníu, Jemen, Tyrklandi, Pakistan og Afganistan.

Styrktu söfnunina hér.