Skrifstofa Barnaheilla flytur í Mannréttindahúsið og lokar í júlí
Barnaheill – Save the Children flytja sig um set úr Borgartúni 30 og munu opna skrifstofu sína í Mannréttindahúsinu, Sigtúni 42, þann 4. ágúst.
Mannréttindahúsið sameinar fjölbreytt samtök sem berjast fyrir mannréttindum hvert á sínum forsendum, og sækja styrk og kraft í samveru við önnur réttindasamtök.
Vegna flutninganna og sumarleyfa starfsfólks verður skrifstofa Barnaheilla lokuð 1. júlí – 4. ágúst. Aðeins verður lágmarks starfsemi þennan tíma, en senda má brýn erindi á netfangið barnaheill@barnaheill.is.
