Skólinn risinn í Síerra Leóne – Barnaheill þakka öllum sem styrktu verkefnið

Skólinn sem Barnaheill – Save the Children á Íslandi eiga veg og vanda að, er nú risinn í afskekkta þorpinu Macca í Pujehanhéraði í Síerra Leóne. Um 300 grunnskóla- og leikskólabörn sækja þar nú nám, en höfðu áður lítil sem engin tök á skólagöngu. Bygging skólans mun gjörbylta lífi og framtíð barna í þorpinu sem fá nú loks tækifæri til menntunar.

Barnaheill – Save the Children á Íslandi réðust í að byggja skólann eftir vettvangsferð á svæðið á síðasta ári. Barnaheill hafa starfað í Pujehan frá árinu 2021, en það er eitt fátækasta héraðið í Síerra Leóne. Einnig var borað eftir vatni til að hægt væri að setja upp hreinlætisaðstöðu í skólanum og byggja brunn sem gagnast öllum íbúum í Macca og nágrenni.

Leó, Kolbrún, Tótla, Francis og Lydia, starfsmenn Barnaheilla á Íslandi og í Síerra Leóne í nýja skólanum.

Bygging skólans var alfarið fjármögnuð af Barnaheillum og með framlagi almennings á Íslandi. Framlag frá mánaðarlegum styrktaraðilum Barnaheilla, Heillavinum, hefur nýst í verkefnið og Barnakórar Dalskóla, Ingunnarskóla, Vogaskóla, Rimaskóla og Lindaskóla, undir stjórn Jónu Halldórsdóttur kórstjóra, héldu tvenna tónleika til styrktar skólanum í vor.

Lokahnykkur á haustsöfnun Barnaheilla voru svo stórtónleikar Barnaheilla í Salnum í Kópavogi í byrjun september þar sem tónlistarfólkið Mugison, Ellen Kristjánsdóttir, KK, Ragnheiður Gröndal og Pétur Ben fóru á kostum. Allir sem komu að tónleikunum gáfu vinnu sína og miðaverðið rann óskert til byggingar skólans.

„Það kom í ljós að börnin í Macca höfðu enga skólabyggingu og það vantaði almennilegan vatnsbrunn og salerni. Þannig aðstaða barnanna til náms var lítil sem engin. Þá var ákveðið að ráðast í það að byggja þessa hluti fyrir þorpið til að jafna stöðu barna á svæðinu,“ segir Tótla I. Sæmundsdóttir, sem var viðstödd vígslu skólans í síðustu viku. „Það var mögnuð stund þegar við hittum fólkið í þorpinu og fórum með börnunum í nýja skólann þeirra,“ segir Tótla. „Ég er eiginlega bara orðlaus af stolti.“

Nýi skólinn í Macca er glæsilegur að utan sem innan

Framkvæmdir hófust í byrjun þessa árs og var byggingu lokið í ágúst. Þann 7. september var skólinn vígður og tekinn í notkun. Barnaheill eru afar þakklát barnakórunum og tónlistarfólkinu sem lagði þessu mikilvæga verkefni lið, Heillavinum og öllum þeim sem hafa stutt okkur í árlegri haustsöfnun samtakanna í ár.

Verkefni Barnaheilla í Pujehunhéraði nær nú til 87 samfélaga. Það snýr aðallega að fræðslu, menntun, ofbeldisforvörnum og að tryggja öryggi barna í skólum og heima fyrir. Ákveðið var að útvíkka verkefnið til fleiri þorpa á svæðinu eftir að óháð úttekt á verkefnasvæðinu hafði sýnt fram á framúrskarandi árangur síðustu fimm ár við að útrýma ofbeldi. Seinni verkefnafasinn hófst nú í upphafi árs 2026.

Hér má sjá frétt RÚV af vígslu skólans í Macca