SKOH! Hvað er ofbeldi?  er forvarnafræðsla Barnaheilla fyrir börn í 5. – 10. bekk grunnskóla um ofbeldi gegn börnum með áherslu á einelti og kynferðisofbeldi. Rannsóknir sýna að með aukinni fræðslu og sjálfseflingu eru minni líkur á að ofbeldi eigi sér stað og meiri líkur á að börn leiti sér aðstoðar ef þau lenda erfiðum aðstæðum. Fræðsla til barna er því mikilvægur liður í því að uppræta ofbeldi gegn börnum. Markmiðið með fræðslunni er að nemendur þekki til einkenna eineltis og kynferðisofbeldis en einnig er lögð áhersla á samskipti, samþykki og mörk.

SKOH! Hvað er ofbeldi?  byggir á þátttöku og tjáningu nemenda í öruggu og þægilegu umhverfi þar sem virðing og samkennd er í fyrirrúmi. Einnig er farið í leiki, sagðar eru sögur og horft á myndbönd sem snúast um ofbeldi, mörk og samskipti.

SKOH! Hvað er ofbeldi? valdeflir nemendur í aðbregðast við ef grunur vaknar um eða tilkynna þarf ofbeldi.

Lengd fræðslu fyrir nemendur: Fræðslan er 2,5 klukkustundir að lengd með nestis- og hreyfihléum.

Hópastærð:  Til þess að fræðslan skili sem mestum árangri er viðmið á hópastærð um 15 nemendur. Gert er ráð fyrir að kennari eða annar fullorðinn umsjónarmaður sitji fræðsluna með nemendum.

Kynning fyrir foreldraÍ lok hverrar fræðslu eru kennurum eða öðrum tengiliðum sendar glærur fyrir foreldra til upplýsingar um fræðsluna sem nemendurnir fengu.

Verð: 80.000 krónur fyrir einn hóp en 20% afsláttur er veittur þegar fleiri hópar eru bókaðir.

Bókanir og nánari upplýsingar um verkefnið fer í gegnum skoh@barnaheill.is