Símar og snjalltæki

Með frumvarpinu eru breytingar á lögum um grunnskóla sem veiti ráðherra heimild til að setja reglugerð um notkun síma og snjalltækja í skóla- og frístundastarfi. Ágætlega er farið yfir það í greinargerð hversu mikil áskorun getur verið fólgin í umgengni við nýja tækni og því ánægjulegt að ríkisstjórnin sýni vilja til að styðja ungmenni í átt til ábyrgrar notkunar snjalltækja. Í greinargerð kemur jafnframt fram að samkvæmt könnun umboðsmanns barna árið 2024 höfðu allir grunnskólar sem svöruðu sett sér reglur um símanotkun. Í því ljósi er ekki ljóst hvort lagasetning sé líkleg til að skila mestum árangri, eða hvort stjórnvöld ættu að styðja skóla með leiðbeinandi reglum og stórátaki í fræðslu og forvörnum sem beinist að nemendum, kennurum og foreldrum.

Barnaheill – Save the Children á Íslandi vilja á þessum tímapunkti koma eftirfarandi athugasemdum á framfæri við ráðuneytið.

Mikilvægt er að eiga samráð við börn

Samkvæmt fyrrgreindri könnun umboðsmanns barna komu nemendur að gerð símareglna í einungis 58% skóla. Eðlilegt væri að nemendur hefðu alltaf aðkomu að gerð reglna af þessu tagi, en þar sem það er gert er í mörgum tilfellum byggt á metnaðarfullum nemendaþingum, þar sem sjónarmið alls skólasamfélagsins eru dregin fram til að móta sameiginlega stefnu. Með þessum hætti hafa skólar beitt lýðræðislegum vinnubrögðum sem tryggja breitt eignarhald á þeim aðgerðum sem skólasamfélagið sammælist um.

Barnaheillum er ekki kunnugt um að ráðuneytið hafi átt sambærilegt samráð við börn við vinnslu þessa frumvarps eða þeirrar reglugerðar sem til stendur að setja en samtökin leggja ríka áherslu á að ráðuneytið eigi samráð við börn. Barnaheill fagna því að Karítas Lea Kristjánsdóttir, nemandi í Foldaskóla, hafi skilað umsögn í samráðsgáttina þar sem hún gagnrýnir áform ráðherra frá sjónarhorni þess hóps sem breytingunum er ætlað að snerta. Þar birtist væntanlega ein af örfáum röddum ungs fólks sem heyrst í ferlinu og þeim mun mikilvægara fyrir mennta- og barnamálaráðherra að hlusta.

Barnaheill hafa góða reynslu af því að skipuleggja vinnustofur með börnum og ungmennum og eru reiðubúin að vera ráðuneytinu innan handar við að skipuleggja sambærilegar vinnustofur, sé þess óskað.

Fræðsla má ekki sitja á hakanum

Barnaheill hafa lengi beitt sér fyrir því að netið sé öruggari staður fyrir börn og að þau læri að umgangast síma og snjalltæki með ábyrgum hætti. Símabann á skólatíma má ekki verða til þess að draga úr áherslu stjórnvalda á aðgerðir til að fræða öll börn, foreldra og kennara um ábyrga og örugga umgengni við snjalltæki og netið. Í greinargerð er fjallað um þá fræðslu sem þegar er til staðar sem hluta af venjubundnum hlutverkum grunnskóla, en ekki gert ráð fyrir kostnaðarauka vegna fræðslu í tengslum við frumvarpið. Ef áform ráðuneytis eiga að ná því markmiði að draga úr neikvæðum afleiðingum snjalltækjanotkunar nægir ekki aðeins að banna síma á skólatíma heldur hlýtur að þurfa að bæta í og fjárfesta verulega í fræðslu og forvörnum. Sérstaklega skiptir þar máli fræðsla til foreldra, sem spila lykilhlutverk í því að kenna börnum að umgangast netið og samfélagsmiðla

Stafrænt umhverfi mikilvægt fyrir marga hópa

Reglugerð samkvæmt frumvarpsdrögunum getur verið útfærð með margvíslegum hætti. Til að umræða um frumvarpið geti byggt á traustum grunni telja Barnaheill mikilvægt að ráðuneytið ljúki vinnu við drög að reglugerðinni og leggi þau fram sem fylgiskjal með frumvarpinu. Þannig getur ráðherra sýnt með skýrum hætti hvernig hann hyggst útfæra reglur um síma og snjalltæki.

Í greinargerð er fjallað um það hvernig börn með fjölbreyttan tungumálabakgrunn og fötluð börn geta nýtt sér tæknina sem stuðning í skólastarfi. Við frekari vinnslu málsins er nauðsynlegt að horfa til fleiri hópa, t.d. treystir fjöldi barna sem af ólíkum ástæðum eru jaðarsett í nærsamfélaginu á stafræna umhverfið til að finna félagsskap. Illa útfærðar reglur gætu aukið félagslega einangrun barna í þeirri stöðu, sem gengur gegn mati ráðuneytisins á því að frumvarpið muni skila samfélagslegum ávinningi í formi bættrar vellíðan nemenda.

 

Barnaheill – Save the Children á Íslandi telja gríðarlega mikilvægt að tryggja öryggi barna á netinu, líkt og öðrum hlutum samfélagsins. Samtökin lýsa sig reiðubúin til áframhaldandi samtals og samráðs um útfærslu á leiðum til að ná árangri.


Drög að frumvarpi um breytingu á lögum um grunnskóla (símar og snjalltæki)
Umsögn Barnaheilla – Save the Children á Íslandi við mál nr. 195/2025 í samráðsgátt stjórnvalda