Samtal Ungheilla um þátttöku ungmenna

Fulltrúar þriggja ungmennaráða á fundi allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis

Ungheill – ungmennaráð Barnaheilla bjóða áhugasömum ungmennum á samtalsfund þar sem rætt verður um þátttöku ungmenna og samráð við stjórnvöld. Hugmyndin er að tala um vandamálin sem ungmenni hafa rekist á þegar opinberir aðilar kalla eftir skoðunum þeirra – og finna lausnirnar til að bæta úr þeim.

Fundurinn verður í Mannréttindahúsinu, Sigtúni 42, laugardaginn 7. nóvember kl. 10.30-12.00. Boðið verður upp á létta morgunhressingu.

Umræðan skipist í þrjá hluta sem byrja á stuttri kynningu og síðan verður umræða á borðum:

  1. Höfum við lent í sýndarsamráði?
    Fyrst er stutt kynning á leiðbeiningum Samfés um raunverulega þátttöku ungmenna.
  2. Hvernig er hægt að gera betur?
    Fyrst er stutt kynning á verklagi sem Alþingi er að vinna fyrir ungmenni sem koma á nefndarfundi.
  3. Hver væri draumastaðan?
    Stjórn Ungheilla stýrir umræðum um þær breytingar sem myndu skipta mestu máli.

Viðburðurinn er ætlaður ungmennum og hentar sérstaklega þeim sem eru eða hafa verið virk í ungmennaráðum. Við biðjum ykkur að skrá þátttöku hér að neðan svo við vitum betur hvað þarf mikið af veitingum.