Sala á Heillakippunni 2025 er hafin
Með hverri keyptri Heillakippu styður þú alþjóðlegt mannúðarstarf Barnaheilla – Save the Children á Íslandi og hjálpar til við að vernda börn gegn ofbeldi.
Við stöndum frammi fyrir ómögulegum áskorunum – Barnaheill kalla eftir samhug
Samkvæmt nýjustu gögnum Sameinuðu þjóðanna búa fleiri börn nú á átakasvæðum en nokkru sinni fyrr og brotum gegn börnum hefur fjölgað hratt síðustu ár. Á sama tíma færist fjármagnið frá mannúðaraðstoð yfir í varnarmál.
Þörfin fyrir vernd barna hefur aldrei verið meiri og til að leggja okkar af mörkum hafa Barnaheill – Save the Children á Íslandi hafið sölu á Heillakippu ársins 2025 og safna fyrir þróunar- og mannúðarverkefnum Barnaheilla. Verkefnin miða að því að vernda börn gegn ofbeldi.
„Eitt af hverjum fimm börnum í heiminum býr á átakasvæði – og sá fjöldi hefur tvöfaldast á síðustu 30 árum. Samt eyða þjóðir heims margfalt meira fé í hernað en í mannúðaraðstoð. Vegna þessa stöndum við frammi fyrir ómögulegum siðferðislegum áskorunum. Við erum þvinguð til að stöðva lífsbjargandi verkefni og velja hvaða lífi á að bjarga – ákvörðun sem enginn ætti að þurfa að taka,“ segir Tótla I. Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla.
Barnaheill leggja áherslu á að verja réttindi barna og bregðast við mannúðarkrísum. Með kaupum á Heillakippunni getur almenningur stutt þetta starf – og sent skýr skilaboð um að samhugur skiptir máli.
Um Heillakippuna
Heillakippan er tákn um samstöðu, manngæsku og viljann til að hjálpa. Hún er hönnuð og framleidd í Freetown, höfuðborg Síerra Leóne, í samstarfi við Aurora Foundation og handverksfólk á staðnum. Með verkefninu er stuðlað að sjálfbærni, atvinnusköpun og jafnrétti.
Um Barnaheill
Barnaheill gera áþreifanlegt gagn í samfélaginu og gæta réttinda barna á Íslandi og um allan heim. Við höldum úti fræðslu og forvörnum, bregðumst við mannúðarkrísum, veitum þróunar- og neyðaraðstoð og leggjum ríka áherslu á að raddir barna heyrist. Við teljum að með því að tryggja velferð barna aukast líkur á velfarnaði þeirra síðar á lífsleiðinni.
Heillakippan fæst hjá sölufólki okkar um land allt og á Barnaheill.is
