Von til framtíðar fyrir börn á Gaza
10.000 kr.
Þessi Heillagjöf breytir lífi barna á Gaza. Hún gerir Barnaheillum – Save the Children kleift að halda úti barnvænum svæðum sem veita börnum skjól, stuðning og tækifæri á betri framtíð.
Hvað eru barnvæn svæði?
Barnaheill – Save the Children reka átta barnvæn svæði á Gaza og tíu til viðbótar í samstarfi við önnur samtök. Þar fá börn öruggt skjól, tækifæri til að leika, læra og vinna úr áföllum. Veittur er sálrænn og félagslegur stuðningur til að draga úr áhrifum stríðs og streitu. Börn fá leikföng, fræðslu og skapandi verkefni sem hjálpa þeim að endurheimta gleði og von.




