Sálrænn stuðningur og fræðsla fyrir börn á Gaza

3.500 kr.

Þessi Heillagjöf veitir börnum á Gaza aðgang að sálrænum stuðningi og fræðslu. Þau fá tækifæri til að vinna úr áföllum og byggja upp von um betri framtíð.

Hvað eru barnvæn svæði?

Barnaheill – Save the Children reka átta barnvæn svæði á Gaza og tíu til viðbótar í samstarfi við önnur samtök. Þar fá börn öruggt skjól, tækifæri til að leika, læra og vinna úr áföllum. Veittur er sálrænn og félagslegur stuðningur til að draga úr áhrifum stríðs og streitu. Börn fá leikföng, fræðslu og skapandi verkefni sem hjálpa þeim að endurheimta gleði og von.