Öruggt skjól fyrir börn á Gaza
2.500 kr.
Þessi Heillagjöf styður við starfsemi barnvænna svæða á Gaza. Þar fá börn skjól frá átökum og ótta og geta leikið sér og lært í öruggu umhverfi.
Hvað eru barnvæn svæði?
Barnaheill – Save the Children reka átta barnvæn svæði á Gaza og tíu til viðbótar í samstarfi við önnur samtök. Þar fá börn öruggt skjól, tækifæri til að leika, læra og vinna úr áföllum. Veittur er sálrænn og félagslegur stuðningur til að draga úr áhrifum stríðs. Börnin fá leikföng, fræðslu og skapandi verkefni sem hjálpa þeim að endurheimta gleði og von.



