Lýsing
Líkaminn minn er bæklingur sem ætlað er að aðstoða fullorðna og börn á á leikskólaaldri við að ræða saman á opinn og óþvingaðan hátt um leiðir til að vernda börn gegn ofbeldi. Meginmarkmiðið er að gera börn meðvituð um yfirráð þeirra yfir líkama sínum og tilfinningum og að styrkja þau í að setja persónuleg mörk. Fjallað er um snertingu og hvernig hún getur verið bæði jákvæð og neikvæð.
Bæklinginn er hægt að nálgast hjá Barnaheillum án endurgjalds en viðtakandi greiðir sendingarkostnað.



