Lýsing
Lyklakippurnar eru hannaðar og framleiddar af handverksfólki í Freetown, höfuðborg Síerra Leóne og í samvinnu við Aurora Foundation. Með framleiðslunni og samstarfinu leggjum við áherslu á sjálfbærni, atvinnusköpun, jafnréttis- og umhverfismál.
Barnaheill gera áþreifanlegt gagn í samfélaginu og gæta réttinda barna á Íslandi og um allan heim. Við höldum úti fræðslu og forvörnum, bregðumst við mannúðarkrísum, veitum þróunar- og neyðaraðstoð og leggjum ríka áherslu á að raddir barna heyrist. Við teljum að með því að tryggja velferð barna aukast líkur á velfarnaði þeirra síðar á lífsleiðinni.




