Fjögur teppi fyrir ungabörn á átakasvæðum

3.500 kr.

Með þessari gjöf gefur þú fjögur ungbarnateppi til nýbura á átakasvæði. Mjúk teppi umvefja nýbura og lítil börn og er þörfin á þessum hlýja pakka mikil hjá nýburum og litlum börnum sem fæðast inn í erfiðar aðstæður þar sem átök geisa.

Í dag búa um 473 milljónir á átakasvæðum í heiminum, það er 19% allra barna! Barnaheill – Save the Children vinna hörðum höndum að því að veita börnum aðstoð víðsvegar um heim. Meginmarkmið samtakanna er að tryggja öryggi barna á átakasvæðum og að þau séu vernduð gegn hverskyns ofbeldi. Barnaheill munu sjá til þess að börn á átakasvæðum njóta góðs af gjöfinni.

Vörunúmer: HG001 Flokkur:

Lýsing

Þú færð sent fallegt gjafakort í tölvupósti þegar Heillagjöf er keypt.
Tilvalið er að prenta út gjafakortið og gefa í jólagjöf.