Páll Óskar og Sara Rós Kristinsdóttir hlutu viðurkenningu Barnaheilla 2025

Barnaheill veittu í dag viðurkenningu sína fyrir sérstakt framlag í þágu barna og mannréttinda þeirra. Eins og áður er 20. nóvember helgaður Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og mannréttindum barna, og er dagurinn því kjörinn til að heiðra einstaklinga sem hafa unnið óeigingjarnt starf til að bæta líf barna og verja réttindi þeirra.

Það er okkur sönn ánægja að heiðra Söru Rós Kristinsdóttur og Pál Óskar Hjálmtýsson með Viðurkenningu Barnaheilla 2025 fyrir ómetanlegt starf í þágu barna og elju þeirra við að bæta samfélagið börnum í hag.

Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, stjórnarformaður Barnaheilla afhenti viðurkenninguna við hátíðlega athöfn í dag ásamt Guðmundi Inga Kristinssyni, mennta- og barnamálaráðherra.

„Við skulum aldrei gleyma því að réttindi barna þarf stöðugt að huga að og hvert okkar getur lagt sitt af mörkum, hvort sem er í starfi, í samskiptum eða með því að standa vörð um þau gildi sem tryggja börnum öryggi og tækifæri.“ sagði Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, formaður stjórnar Barnaheilla.

Auk viðurkenningarinnar fá viðurkenningarhafar peningastyrk að upphæð 500 þúsund krónur hvort, sem nýta á í þau frábæru verkefni sem þau standa fyrir.

Á athöfninni hélt Karítas Lea Kristjánsdóttir áhrifamikla ræðu fyrir hönd stjórnar Ungheilla, ungmennaráðs Barnaheilla. Fjallaði ræðan um mikilvægi þess að hlustað sé á raddir barna og ungmenna við ákvarðanatöku sem varða þau.

„Við erum ekki að biðja um að fá að ákveða allt. Við vitum að fullorðnir hafa reynslu og þekkingu sem við höfum ekki. En við höfum líka reynslu og þekkingu sem fullorðnir hafa ekki – reynsluna af því að vera barn í þessu samfélagi, núna og í dag.“ sagði Karítas Lea, fulltrúi Ungheilla við afhendingu viðurkenningarinnar.

Barnaheill óska viðurkenningarhöfum innilega til hamingju og hlakka til að fylgjast með starfsemi þeirra áfram.

Um viðurkenningahafa

Sara Rós Kristinsdóttir er stofnandi Lífsstefnu, fyrirtækis sem sérhæfir sig í vöruhönnun og fræðslu. Lífsstefna er með eflandi vörur fyrir fólk á öllum aldri, en Sara sérhæfir sig í að búa til vörur sem styrkja börn og unglinga í tilfinningagreind, sjálfsþekkingu og sjálfstrausti. Hún er ötul talskona barna með fjölbreyttar þarfir og fræðir um taugafjölbreytileika á samfélagsmiðlum, í pistlum og hlaðvörpum. Sara hefur stofnað Facebook-hópinn Skólamálin okkar, tekið virkan þátt í samstarfi við félagasamtök og ráðuneyti, og er í Fag- og notendaráði Gló styrktarfélags. Hún heldur einnig úti fræðsluhlaðvarpinu 4. vaktin ásamt Lóu Ólafsdóttur, þar sem fjallað er um málefni fatlaðra og langveikra barna og fjölskyldna þeirra.

Páll Óskar Hjálmtýsson hefur á tónlistarferli sínum verið óþreytandi að berjast fyrir réttindum barna og ungmenna svo sem á sviði hinsegin mála, barna á flótta og annara sem fá ekki að tilheyra samfélaginu vegna fordóma. Með nýju lagi Páls Óskars og Benna Hemm Hemma, ,,Eitt af blómunum” beina þeir sjónum sínum að einelti. Páll Óskar hefur sagt þetta lag eitt það mikilvægasta sem hann hefur nokkurn tíma sent frá sér og ferðast nú með Benna til að breiða út boðskapinn fyrir börn um allt land.  Páll Óskar er óhræddur við að taka afstöðu með jaðarsettum hópum, tala til almennings um erfið mál og er mikilvæg fyrirmynd fyrir æsku þessa lands.