Öryggisráðstafanir samkvæmt dómsúrlausn

Barnaheill – Save the Children á Íslandi hafa skoðað frumvarpsdrögin út frá hagsmunum þeirra barna sem gert er ráð fyrir geti frá 15 ára aldri verið gert að sæta öryggisráðstöfunum samkvæmt dómsúrlausn. Eins og fram kemur í greinargerð frumvarpsdraganna er öryggisráðstöfunum ætlað að ná yfir „viðkvæman hóp sem er með geðrænan vanda og/eða skerðingar af ýmsum toga (fjölþættan vanda)“. Mikilvægt er að greina hvort það þjóni hagsmunum barna í þeirri stöðu að svipta þau frelsi um lengri eða skemmri tíma.

Samkvæmt frumvarpsdrögunum skulu börn sæta öryggisgæslu í úrræðum á vegum Barna- og fjölskyldustofu og njóta sömu meðferðar og önnur börn sem í barnaverndarúrræðinu dvelja, og verði framkvæmd vistunar og þjónusta við börnin á ábyrgð barnaverndaryfirvalda.

Barnaheill vilja minna ráðuneytið á að barnaverndarlög eru engan veginn í stakk búin til að grípa þennan viðkvæma hóp. Ítrekað hafa komið upp dæmi þess hversu óviðunandi umgjörð er um þvingunarráðstafanir gagnvart börnum á heimilum og stofnunum á ábyrgð ríkisins. Umboðsmaður Alþingis hefur í tengslum við OPCAT-eftirlit með búsetuúrræðum sem rekin eru á grundvelli barnaverndarlaga beint því til mennta- og barnamálaráðuneytis að endurskoða þurfi ákvæði laganna og vakið athygli á því að enn hafi ekki verið sett reglugerð um beitingu þvingunar skv. 82. gr. þeirra, 23 árum eftir að barnaverndarlög tóku gildi. Brýnt er að ljúka sem fyrst þeirri endurskoðun á barnaverndarlögum sem mennta- og barnamálaráðuneytið hefur boðað til að bæta úr þessum annmörkum.

Þá vilja Barnaheill benda á óheppilega skörun á hlutverkum barnaverndaryfirvalda í frumvarpsdrögunum. Ætlun ráðuneytisins er að framkvæmd vistunar verði á ábyrgð barnaverndaryfirvalda, en skv. 6. gr. frumvarpsdraganna segir jafnframt að barnaverndaryfirvöld hafi eftirlit með stöðum þar sem börn sæta öryggisráðstöfunum. Erfitt er að sjá hvernig réttaröryggi barnanna verði tryggt með því að sami aðili beri ábyrgð á framkvæmd og eftirliti. Mikilvægt er að óháð eftirlit verði skilgreint og því tryggt fjármagn.


Drög að frumvarpi til laga um öryggisráðstafanir samkvæmt dómsúrlausn
Umsögn Barnaheilla – Save the Children á Íslandi við mál nr. 177/2025 í samráðsgátt stjórnvalda