Öflugur stuðningur við börn í Írak í skugga vaxandi átaka

Tæpt ár er síðan Barnaheill – Save the Children hófu samstarf með systursamtökum sínum í Írak um vernd berskjaldaðra barna og fjölskyldna þeirra á átakasvæðum í héruðum Kúrda í norðurhluta landsins. Mikið hefur áunnist í verkefnum samtakanna, en harðnandi átök í Mið-Austurlöndum auka enn á neyðina á þessu svæði.  

Barnaheill hafa efnt til neyðarsöfnunar fyrir verkefni á svæðinu til að svara neyðarkalli alþjóðasamtaka Barnaheilla – Save the Children í Mið-Austurlöndum. Neyðarbeiðnin kallar eftir 20 milljörðum króna í mannúðarverkefni í Líbanon, Palestínu, Sýrlandi, Írak, Jórdaníu, Jemen, Tyrklandi, Pakistan og Afganistan. Óttast er að aukinn fólksflutningur til og frá þessum löndum og mikil verðhækkun nauðsynjavara, hafi áhrif á afkomu viðkvæmra hópa í þessum löndum.

Á síðustu tíu mánuðum hafa Barnaheill, með fjárstuðningi utanríkisráðuneytis Íslands, tekist að styrkja barnaverndarkerfið á svæðinu, bæta aðgengi að lífsnauðsynlegri þjónustu og efla sjálfbærni og seiglu fjölskyldna í samfélaginu. Á þessu tímabili hafa um 1.039 einstaklingar notið þjónustu Barnaheilla, þar á meðal 705 börn. 

Barnaheill hafa sett upp tvær móttökustöðvar, annars vegar í Kabarto-flóttamannabúðunum í Duhok og hins vegar í Al-Shifaa hverfi í Ninawa-héraði þar sem veitt er samþætt barnaverndarþjónusta, einstaklingsmiðuð ráðgjöf og fjölbreytt sálfélagsleg úrræði fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Eftirspurn eftir þjónustu í móttökustöðvunum hefur aukist gífurlega á undanförnum vikum – ekki síst vegna þess hve mörg hjálparsamtök hafa neyðst til að draga úr starfsemi sinni og yfirgefa svæðið vegna skyndilegs niðurskurðar á fjármagni til mannúðarverkefna á alþjóðavísu. 

Markviss barnaverndarþjónusta  

Barnaheill hafa unnið markvisst að einstaklingsmiðaðri barnaverndarþjónustu í flóttamannabúðunum fyrir börn sem búa við ofbeldi og vanrækslu, ásamt því veita aðstoð til barna sem hafa verið í barnaþrælkun eða til barna sem hafa tekið þátt í vopnuðum átökum.  

Frá upphafi verkefnisins hafa 126 barnaverndarmál verið skráð. Með samvinnu Barnaheilla og félagsmálayfirvalda hefur fjöldi mála verið lokið með jákvæðum árangri þar sem börnum eru tryggðar öruggar aðstæður. 

Sálfélagslegur stuðningur nær inn á heimili fjölskyldna 

Sálfélagslegur stuðningur er eitt af megin áherslum Barnaheilla í Írak. Fjöldi barna og fjölskyldur þeirra sækja þjónustuna í móttökustöðvarnar, en fyrir þau sem ekki hafa tök á að ferðast þangað hefur verið þróuð heimamiðuð þjónusta þar sem sérþjálfað starfsfólk heimsækir fjölskyldur vikulega. Alls hefur 61 fjölskylda fengið slíka aðstoð.  Þátttakendur hafa greint frá því að eftir fjögurra vikna stuðningsferli upplifi þau minni streitu.  

,,Í dag get ég brugðist við erfiðum aðstæðum með meiri ró. Heimilishaldið hefur orðið friðsælla og einnig hafa tengsl mín við börnin verið styrkt. Við upplifum öll minni streitu og meiri frið,” segir Rania*, einstæð móðir þriggja barna sem býr í Al-Zanjili og nýtur stuðnings Barnaheilla. 

Skapandi tjáning leið til að vinna úr áföllum barna

Drengur með verk sitt úr listasmiðju í Írak
Listasmiðjur hjálpa börnum að vinna úr erfiðri reynslu og áföllum í gegnum tjáningu og skapandi greinar.

Barnaheill hafa einnig beitt svokallaðri HEART aðferð (Healing and Education through Art) eða listasmiðjur til að aðstoða börn við að vinna úr áföllum. Aðferðin byggist á því að nota skapandi tjáningu og list til að tjá tilfinningar sínar í öruggu umhverfi, og vinna þannig úr erfiðri reynslu og áföllum. Rúmlega 70 börn hafa tekið þátt í slíkri vinnu og hafa foreldrar þeirra greint frá bættri líðan barnanna og aukinni félagslegri þátttöku. 

Barn á hækjum í Írak
Sérstakur stuðningur er við fötluð börn í verkefnum Barnaheilla í norðurhluta Írak.

Sérstakur stuðningur við fötluð börn 

Í samstarfi við félagsmálayfirvöld hafa Barnaheill lagt sérstaka áherslu á fötluð börn.. Félagsráðgjafar hafa fengið þjálfun í faglegri málastjórnun og hafa veitt börnum og fjölskyldum þeirra einstaklingsbundinn stuðning, meðal annars með heimavitjunum og sálfélagslegum úrræðum. Ánægjukannanir hafa sýnt fram á mjög jákvæðar niðurstöður.