Ofbeldið þrífst í þögninni – ÉG LOFA að segja frá

„Með því að tala opinskátt um kynferðisofbeldi gegn börnum, aukum við líkur á að fleiri börn segi frá,“ segir Tótla I Sæmundsdóttir framkvæmdastjóri Barnaheilla. Vitundarvakningin ÉG LOFA er ákall til fullorðinna um að leggja sitt af mörkum til að útrýma kynferðisofbeldi gegn börnum á Íslandi.

Tótla segir að þetta vor hafi verið óvenjuþungt þegar kemur að umfjöllun um kynferðisbrot gegn börnum, og því hafi boðskapur herferðarinnar kannski aldrei verið mikilvægari en einmitt nú. Með því að tala opinskátt um kynferðisofbeldi gegn börnum og með því að miðla upplýsingum og fræðslu aukum við líkur á því að fleiri börn segi frá, og erfiðara verði fyrir þá sem brjóta af sér að fela sig í skjóli þagnarinnar.

“Við vitum að það eru alltof fá börn sem segja frá. Við vitum að fólki finnst erfitt og óþægilegt að tala við börn um kynferðisbrot, og við erum að gefa fólki verkfæri og opna á umræðuna um það hvernig fólk geti talað um þessi mál við börnin,“ segir Tótla.

Tótla segir að það verði að hafa í huga aldur og þroska barna þegar þessi mál séu rædd, en ekkert barn sé of ungt til að tala við um mörk og líkama þess. Barnaheill vilji aðstoða foreldra og forráðamenn til að eiga þetta samtal.

„Ofbeldið þrífst í þögninni. Við vitum að það er erfiðara fyrir gerendur þegar það er mikil umræða um þessi mál og það er rætt við börnin. „Þau eru líklegri til að segja frá, ef það er talað við þau.“

Markmiðið með herferðinni sé að börn læri að þekkja muninn á eðlilegri og óeðlilegri snertingu, og góðum og slæmum leyndarmálum. Góðu leyndarmálin séu þau sem koma í ljós síðar eins og afmælisgjöfin til afa, en vondu leyndarmálin séu þau sem megi aldrei segja frá.

„Við verðum að kenna börnum að þau eigi að segja frá,“ segir Tótla.

Frétt um vitundarvakninguna ÉG LOFA birtist í sjónvarpsfréttum RÚV, mánudaginn 20. apríl.

Fullorðnir verða að þora að tala um þetta upphátt

Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir
Kolbrún Hrund segir mikla leynd hafa hvílt yfir brotum á milli systkina

Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, verkefnisstýra ofbeldis- og kynheilbrigðismála hjá Barnaheillum, tekur undir orð Tótlu í viðtali hjá Vísi.

„Við höldum að með því að fullorðnir þori að tala um þetta upphátt og þori að vera á varðbergi og þori að fræða börn, til dæmis bara um kynfærin og um snertingar og um leyndarmál, hvað má, hvað má ekki, þá fái börn skilaboð um að það megi segja frá og að þau muni fá hjálp. Það verði hlustað og það verði brugðist við og þau munu fá stuðning.“

Barnaheill hafa einnig unnið bækling og fræðsluefni um kynferðisbrot á milli systkina markaði upphaf herferðarinnar ÉG LOFA í ár. Algjör þagnarmúr hefur umlukið slík brot, og fá úrræði eru í boði fyrir fjölskyldur og börn sem eru í þeim aðstæðum. Kolbrún segir þetta brotaflokk sem hafi verið kirfilega falinn í samfélaginu.

Fræðsluefni um kynferðisbrot á milli systkina í fyrsta sinn á íslensku

„Það hefur verið alveg svona sérstaklega mikil leynd sem hefur hvílt yfir þessum brotum vegna þess að þau eru svo einstaklega flókin. Það eru svo ofboðslega flókin tengsl. Við notum almennt ekki orðið gerandi og þolandi yfir börn en þegar bæði börnin sem eiga í hlut búa í sömu fjölskyldu þá gerir það að verkum að foreldrum fallast algjörlega hendur í mörgum tilvikum.“

Hún segir foreldra upplifa í þessum tilfellum mjög flóknar tilfinningar. Þau geti fengið óbeit á barninu sem braut af sér eða geti orðið reið við barnið sem sagði frá.

„Það hefur ekkert fræðsluefni verið til og við erum að gefa það út í fyrsta skipti á íslensku, um systkinabrot. Að mínu mati er löngu kominn tími til af því að ég held að mjög margir sem hafa upplifað þetta upplifi að þeir séu einir,“ segir Kolbrún.

Þrjár konur opnuðu sig um slíkt ofbeldi í viðtali á Vísi við upphaf herferðar Barnaheilla ÉG LOFA sem hægt er að lesa hér.