Nýtt verkefni Barnaheilla í Síerra Leóne

Í dag hefst nýtt fjögurra ára verkefni Barnaheilla í Síerra Leóne þar sem meginmarkmiðið er að vernda börn gegn ofbeldi. Verkefnið byggir á reynslu og árangri fyrri ára í afskekktum þorpum í Pujehún héraði. Þar hafa Barnaheill starfað frá árinu 2021 og bætt öryggi og líðan þúsunda barna – í skólum, á heimilum og í samfélaginu öllu.

Með nýja verkefninu ná Barnaheill til 13.036 manns, þar af 5.950 barna, í 73 samfélögum.

Unnið verður að því að:
  • Minnka ofbeldi í skólum og á heimilum
  • Fræða börn um réttindi þeirra og bæta líðan þeirra
  • Efla samstarf við barnaverndaryfirvöld
  • Efla og styrkja neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis

Á dögunum heimsóttu Kolbrún Pálsdóttir, verkefnastjóri erlendra verkefna og Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, verkefnastýra ofbeldis- og kynheilbrigðismála, þorp í Pujehun sem Barnaheill hafa starfað í undanfarin fjögur ár sem og ný þorp sem nú bætast við.

 ,,Það var ótrúlega áhrifamikið að hitta börnin í þorpunum og sjá svart á hvítu hvað mikill árangur hefur náðst. Börn sem við höfum unnið með vita nú hvað réttindi þeirra fela í sér og hika ekki við að tilkynna ofbeldi ef þau verða vitni að slíku. Það var sérstaklega ánægjulegt að heyra að ofbeldi kennara gegn börnum hefur dregist verulega saman. Á sama tíma heyrðum við hryllilegar sögur frá börnum í nýju þorpunum, hvernig kennarar beita þau ofbeldi í skólum,“ segir Kolbrún Pálsdóttir.

Í þorpunum eru stelpur mjög berskjaldaðar fyrir ofbeldi af hendi kennara en margar segja það algengt að kennarar beiti þær kynferðisofbeldi gegn góðum einkunnum.

Barnaheill eru stolt af árangrinum sem þegar hefur náðst í Síerra Leóne og ætla að halda áfram að berjast fyrir því að öll börn fái að alast upp við öryggi, virðingu og réttlæti.