Nýr formaður og stjórn Barnaheilla kjörin á aðalfundi 2026

Aðalfundur Barnaheilla – Save the Children árið 2026 var haldinn miðvikudaginn 13. maí, í Loftskeytastöðinni við Brynjólfsgötu. Staðsetningin var sérlega viðeigandi því þar er safn um ævi og áhrif Vigdísar Finnbogadóttur fyrrverandi forseta, en hún er verndari Barnaheilla og fyrsti stofnfélagi samtakanna.

Kristín Ýr Gunnarsdóttir var fundarstjóri. Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir, varaformaður Barnaheilla, flutti skýrslu stjórnar í fjarveru Jóhönnu Vigdísar Guðmundsdóttur formanns. Þá fór Tótla I. Sæmundsdóttir framkvæmdastjóri yfir ársskýrslu fyrra árs, ársreikninga og kynnti svo verkefni og markmið Barnaheilla fyrir árið 2026.

Ein lagabreyting var samþykkt á fundinum, þar sem hlutverk skoðunarmanna reikninga var lagt niður, enda óþarft samkvæmt lögum um almannaheillafyrirtæki þar sem fjármálastjóri er í fullu starfi hjá Barnaheillum og utanaðkomandi endurskoðandi annast skoðun ársreiknings. KPMG á Íslandi mun sjá um endurskoðun reikninga Barnaheilla.

Tekin var einróma ákvörðun um að félagsgjald Barnaheilla haldist óbreytt og er það því áfram 3.800 kr. á ári. Félagsmenn Barnaheilla eru bæði Heillavinir, mánaðarlegir styrktar aðilar, og þeir einstaklingar sem greiða árlegt félagsgjald.

Þá var gengið til kosninga. Jóhanna Vigdís, sem setið hefur í stjórn Barnaheilla í fjögur ár og þar af þrjú sem formaður, gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Úr stjórn gengu einnig Ólafur Aðalsteinsson og Jóna Vestförð Hannesdóttir, og er þeim öllum þakkað kærlega fyrir störf sín í þágu barna og samtakanna.

Fjöldi umsókna til stjórnarsetu er til marks um það hversu mjög Barnaheill hafa látið að sér kveða undanfarin misseri, því 25 einstaklingar svöruðu auglýsingu samtakanna en aðeins þrjú stjórnarsæti voru í boði.

Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir, sem setið hefur í stjórn Barnaheilla síðustu tvö ár var kjörin nýr formaður. Varaformaður er Andrés Proppé Ragnarsson, og Hallgrímur Helgason kemur nýr inn í stjórn en var áður varamaður. Dagbjartur Brynjarsson, Guðrún Björnsdóttir, Ingibjörg Magnúsdóttir og Sigrún Steinarsdóttir gáfu kost á sér áfram í stjórn, en Andrea Rói Sigurbjörns, Árni Geir Pálsson og Lára Jónasdóttir koma ný inn í varastjórn.

Við minnum á að árskýrsla Barnaheilla fyrir árið 2025 er nú aðgengileg, og við hvetjum ykkur til að skoða hana.