Ný stjórn Ungheilla og kraftmikil framtíðarsýn
Aðalfundur Ungheilla, ungmennaráðs Barnaheilla, var haldinn miðvikudaginn 29. október þar sem farið var yfir starf síðasta árs og rætt um framtíð ráðsins. Á fundinum var lögð áhersla á mikilvægi þess að raddir ungs fólks heyrist í samfélaginu og að það sé virkir þátttakendur í ákvarðanatöku um málefni sem snúa að börnum og ungmennum.
„Það skiptir máli að vanda til verka og hafa ungt fólk með í samtalinu,“ var meðal þess sem kom fram í umræðum á fundinum.
Ný stjórn Ungheilla var kosin og bjóðum við fjóra nýja stjórnarmeðlimi hjartanlega velkomna:
- Mia Ðuric
- Ástrós Inga Jónsdóttir
- Sóley Lóa Smáradóttir
- Karítas Lea Kristjánsdóttir
Þær koma með frábæra orku og ferskar hugmyndir inn í starfið. Indriði Nökkvi Þóreyjarson og Alex Lilja Rún halda áfram í stjórn og munu styðja við áframhaldandi uppbyggingu Ungheilla.
Framtíðarsýn Ungheilla er skýr: að skapa vettvang þar sem ungt fólk getur haft áhrif, tekið þátt í mótun samfélagsins og tryggt að málefni barna og ungmenna séu ávallt í forgrunni.
Á sama tíma og Barnaheill hlakka til samstarfsins með nýju stjórn Ungheilla þá þökkum við fráfarandi stjórn fyrir framlag sitt. Þeirra framlag hefur lagt grunn að áframhaldandi árangri og nýjum tækifærum.
