Níu mannréttindasamtök mótmæla frelsissviptingu barna á flótta

Níu samtök sem vinna saman innan Barnaréttindavaktarinnar skora á Alþingi að hafna frumvarpi ríkisstjórnarinnar um brottfararstöð fyrir fólk á flótta, þar sem enn sé lagt til að frelsissvipta börn með fjölskyldum sínum.

Samtökin ítreka að ekki eigi að líðast að hneppa börn í varðhald fyrir það eitt að vera á flótta. Svo lengi sem gert sé ráð fyrir því í frumvarpinu, brjóti það gegn Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og réttindum barna.

Barnaheill, Hinsegin félagsmiðstöð S78 og Tjarnarinnar, Landssamtökin Geðhjálp, Rauði krossinn á Íslandi, Samfés – landssamtök félagsmiðstöðva og ungmennahúsa, Umhyggja – félag langveikra barna, UNICEF á Íslandi og ÖBÍ réttindasamtök standa saman að áskoruninni, sem send var allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis í dag.

Þær breytingartillögur sem dómsmálaráðuneytið hefur lagt til við þingið til að koma til móts við gagnrýni á frumvarpið, gera enn ráð fyrir að hægt sé að frelsisvipta börn með fjölskyldum sínum í aðdraganda þvingaðs brottflutnings.

Í umsögnum við frumvarpið hefur verið bent á fjölda valkosta sem grípa mætti til í tilvikum fjölskyldna, þar sem varðhald gæti verið kostur fyrir einstaklinga, en vægari úrræði væru til staðar fyrir fjölskyldur þar sem börn væru áfram frjáls.

Samtökin skora á alþingismenn að hafna því að frelsissvipta börn fyrir það eitt að vera á flótta. Barnasáttmálinn setur þá skyldu á Alþingi að hafa hagsmuni barna að leiðarljósi og undan því verður ekki komist. Svo lengi sem til stendur að frelsissvipta börn á brottfararstöð mun það brjóta réttindi barna.

 

Hér er hægt að lesa áskorun samtakanna: Áskorun til alþingismanna: Ekki frelsissvipta börn á brottfararstöð