Börn standa frammi fyrir alvarlegri ógn
Ebóla breiðist nú út með ógnarhraða í austurhluta Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó og stofnar lífi barna og fjölskyldna í mikla hættu. Faraldurinn hefur þegar kostað hundruð mannslífa og ebólutilfelli hafa einnig greinst í nágrannaríkinu Úganda.
Börn eru meðal þeirra sem verða verst úti vegna faraldursins. Þau eiga á hættu að missa foreldra eða aðra umönnunaraðila, missa úr skóla og glíma við afleiðingar veikinda og ótryggja aðstæðna.
Hvað er að gerast?
Faraldurinn er af Bundibugyo-afbrigði ebóluveirunnar, sem er afar sjaldgæft og því er hvorki til viðurkennt bóluefni né sértæk meðferð við því.
Útbreiðsla ebólunnar er mest í austurhluta landsins þar sem síendurtekin átök hafa hrakið fólk á flótta og veikt alla innviði samfélagsins, sérstaklega heilbrigðiskerfið. Þetta hefur elitt af sér eina alvarlegustu mannúðarkrísu heims, þar sem um 15 milljónir manna reiða sig á mannúðaraðstoð til að lifa af. Vannæring er viðvarandi vandamál hjá börnum á þessu svæði, og hætta er á að ástandið versni enn frekar þar sem stjórnvöld hafa lokað fyrir birgðaflutninga milli héraða vegna smithættu.
Hvernig hjálpa barnaheill - save the children?
Barnaheill – Save the Children hafa starfað í Kongó frá árinu 1994 og eru með víðtæk verkefni á þeim svæðum sem hafa orðið verst úti í faraldrinum.
Við vinnum með heilbrigðisyfirvöldum og samfélögum að því að stöðva útbreiðslu smits, styðja heilbrigðisstarfsfólk, tryggja aðgengi að hreinu vatni og vernda börn og fjölskyldur í hættu.
Hvað gerir framlag þitt?
Framlag þitt hjálpar okkur að veita börnum og fjölskyldum lífsnauðsynlega aðstoð á hamfarasvæðum.
Með þínum stuðningi getum við styrkt smitvarnir, útvegað hlífðarbúnað fyrir heilbrigðisstarfsfólk, miðlað upplýsingum um sjúkdóminn og stutt börn sem hafa misst foreldra eða aðra umönnunaraðila.
Barnaheill - Save the Children á vettvangi
Barnaheill – Save the Children eru á vettvangi í Norður-Kivu, Suður-Kivu og Ituri, þeim héruðum sem hafa orðið verst úti í faraldrinum.
Við styðjum heilbrigðisstöðvar og skóla, vinnum með samfélögum að smitvörnum og veitum börnum og fjölskyldum aðgang að heilbrigðisþjónustu, næringu, menntun og vernd.
