Haustið 2025 var lagður grunnur að nýju þróunarverkefni í Tansaníu sem miðar að því að
efla vernd barna og kvenna gegn ofbeldi. Meginmarkmið verkefnisins er að koma í veg fyrir
kynbundið ofbeldi og kynferðisofbeldi og tryggja að þolendur fái viðeigandi stuðning.

Þar vinna Barnaheill með Save the Children í Tansaníu í tíu samfélögum þar sem stutt er við
svokölluð One Stop Centers, sem eru móttökustöðvar fyrir þolendur kynferðisofbeldis. Þar
er veitt heildstæð og samhæfð þjónusta með félagsráðgjafa, lögreglu, lækni og nú
lögfræðiþjónustu á hverri stöð.

Framkvæmdastjóri og verkefnastjóri erlendra verkefna fóru á vettvang til að taka út
verkefnasvæðin í lok árs 2025 og styrkja tengslin við samstarfsfólk og haghafa.
Verkefnið hófst svo í janúar 2026 og er til fjögurra ára, með stuðningi frá utanríkisráðuneyti
Íslands.

Það verður innleitt á Zanzibar en einnig munu Barnaheill styðja við starf Barnaheilla – Save
the Children á meginlandi Tansaníu sem gegna mikilvægu málsvarahlutverki í landinu, í að
þrýsta á stjórnvöld um breytingar á lögum um barnahjónabönd.

Barnaheill – Save the Children á Íslandi halda úti verkefni í Pujehun héraði og er það stutt af utanríkisráðuneytinu. Verkefni Barnaheilla miðar að því að draga úr kynbundnu- og kynferðisleguofbeldi í og við 10 skóla í afskekktum samfélögum héraðsins.

Barnaheill veita stúlkum og drengjum margvíslega fræðslu um ofbeldi, þar á meðal um réttindi sín. Foreldrar og kennarar fá þjálfun í jákvæðum uppeldisaðferðum ásamt margvíslegri annarri fræðslu. Barnaheill vinna með öllu samfélaginu að því að draga úr kynbundnu ofbeldi í skólum og rödd barnanna sjálfra skipar mikilvægan sess í þeirri vinnu.

Við vinnum að því að gera tilkynningarleiðir skýrari og aðgengilegri. Við fræðum allt samfélagið, börn og fullorðna um umskurð kvenna, barnahjónabönd og þunganir unglingsstúlkna. Barnaheill vinna að þarfagreiningu ásamt börnum, foreldrum, kennurum og samfélaginu öllu þar sem rýnt er í hvar kynbundið ójafnrétti liggur í skólakerfinu. Við vinnum náið með lögreglu, barnavernd og félagsmálayfirvöldum á svæðinu og eflum tengsl þeirra á milli. Við aðstoðum með að skerpa á viðbragðstíma þegar upp koma mál er varða ofbeldi gegn börnum.

Áskoranir barna í Síerra Leóne

Svona getur þú hjálpað börnum í SÍerra Leóne

Hér er hægt að styðja við verkefni Barnaheilla. Hjálpumst að og verndum börn í  Síerra Leóne og um allan heim.

Heillavinir eru mánaðarlegir styrktaraðilar okkar og taka á þann hátt þátt í forvarnastarfi okkar gegn hverskyns ofbeldi á börnum.